Talsverðar tafir vegna hjólbarðaskipta – lögregla grípur inn í umferðina

App­el­sínugular veð­ur­við­ar­anir taka gildi seinni part­inn. Unnið er að því að fjar­lægja bíla sem sitja fastir á stofn­brautum. Lög­reglan hefur gripið inn í langar raðir við hjól­barða­verk­stæði.

Talsverðar tafir vegna hjólbarðaskipta – lögregla grípur inn í umferðina
Örtröð Löng bið er við hjól­barða­verk­stæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Lög­reglan hefur sum­staðar séð sig knúna til að grípa inn í, þar sem rað­irnar ná inn á stofn­brautir. Mynd: Golli

Löng bið­röð hefur mynd­ast við hjól­barða­verk­stæði víða um höf­uð­borg­ar­svæðið og er farið að valda veru­legum umferð­artöfum, þar á meðal á stofn­brautum.

Að sögn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ástandið orðið svo alvar­legt að lög­regla hefur hafið aðgerðir til að vísa öku­mönnum frá þar sem biðraðir teygja sig út á stofn­leiðir.

VerkefniLög­reglan hefur átt í fullu fangi við að halda umferð gang­andi.

Dæmi um þetta er við Skútuvog í Reykja­vík, þar sem minnst tvö hjól­barða­verk­stæði eru. Strax fyrir klukkan 9 í morgun voru langar raðir farnar að mynd­ast við verk­stæðin, sem í öðru til­fell­inu náði alla leið upp á gatna­mót Holta­vegar og Sæbrautar. 

Lög­reglan leggur nú sér­staka áherslu á að halda stofn­brauta­kerf­inu opnu. Þegar til­kynn­ingin var send voru tæki á leið á Kringlu­mýr­ar­braut við Bústaða­veg til að fjar­lægja van­búin öku­tæki sem stöðva hluta umferðar í átt til Reykja­víkur.

…
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár