Trump hótaði Selenskí að Pútín „myndi eyða“ Úkraínu

Banda­ríkja­for­seti tal­aði máli Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta á eld­fimum fundi með for­seta Úkraínu.

Trump hótaði Selenskí að Pútín „myndi eyða“ Úkraínu
Selenskí eftir fund­inn Úkra­ínu­for­seti mætti aftur fjand­sam­legu við­horfi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, sem neit­aði honum um stýriflaugar og hvatti hann til að gefa eftir meira land til Rússa. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti skor­aði á Voló­dý­mýr Selenskí Úkra­ínu­for­seta að sam­þykkja skil­mála Rúss­lands til að binda enda á inn­rás­ar­stríðið á eld­fimum fundi í Hvíta hús­inu á föstu­dag og var­aði við því að Vladimír Pútín hefði sagt að hann myndi „eyða“ Úkraínu ef hún féllist ekki á kröfur Rússa, að því er Financial Times greinir frá.

Trump hafði fyrir fund­inn rætt um mögu­leik­ann á að afhenda Úkraínu Tomahawk-stýriflaugar sem draga langt inn í Rússland og gætu breytt víg­stöðu Úkraínu til hins betra. Hann hætti við það eftir „vin­gjarn­legt“ sím­tal við Pútín Rúss­lands­for­seta dag­inn fyrir fund­inn.

Samkvæmt heim­ild­ar­mönnum sem voru upp­lýstir um við­ræð­urnar end­aði fund­ur­inn ítrekað sem „hávaðarifr­ildi“ og Trump var „stans­laust að blóta“. „[Pútín] sagði að þetta væri „sér­stök aðgerð, ekki einu sinni stríð,“ er Trump sagður hafa full­yrt á fund­inum.

„Ef hann [Pútín] vill það, mun hann eyða ykkur,“ á Trump til við­bótar að hafa sagt við Selenskí, að sögn evr­ópsks emb­ætt­is­manns sem þekkir til fund­ar­ins.

Heim­ild­ar­menn sögðu að Trump hefði hent kortum af víg­lín­unni til hliðar, sagst kom­inn með „ógeð“, haldið því fram að Selenskí ætti að láta allt Donbas-svæðið af hendi til Rúss­lands og ítrekað end­ur­tekið rök­semdir sem Pútín setti fram í sím­tali þeirra dag­inn áður. „Þessi rauða lína, ég veit ekki einu sinni hvar þetta er. Ég hef aldrei komið þangað,“ á Trump að hafa sagt, og bætt við að rúss­neska hag­kerfið væri „í frá­bæru standi“ þrátt fyrir að hann hafi nýverið sagt opin­ber­lega að „hag­kerfið væri að fara að hrynja“.

Pútín gerði Trump nýtt til­boð á fimmtu­dag þar sem Úkraína myndi afsala sér þeim hlutum Donbas-hér­aðs­ins í austri sem hún ræður yfir í skiptum fyrir nokkur lítil svæði í suð­ur­hér­uð­unum tveimur við víg­lín­una, Kherson og Zaporizhzhia.

Að sögn FT studdi Trump síðar hug­mynd um að frysta stöð­una á núver­andi víg­línum, en fjand­sam­legur tónn fund­ar­ins end­ur­spegl­aði óstöðuga afstöðu for­set­ans til stríðs­ins og til­hneig­ingu hans til að taka undir hámarks­kröfur Pútíns.

Selenskí og teymi hans mættu í Hvíta húsið í þeirri von að fá lang­drægar Tomahawk-skot­flaugar frá Banda­ríkj­unum, en Trump hafn­aði beiðn­inni. Hvíta húsið og skrif­stofa úkra­ínskra for­seta svör­uðu ekki strax beiðnum um athuga­semdir, að sögn FT. 

Í við­tali á Fox News á sunnu­dag sagð­ist Trump bjart­sýnn á að binda endi á átökin og bætti við að Pútín væri „að fara að taka eitt­hvað, hann hefur unnið sér til­tekið land“.

Eftir fund­innAthygli vakti að Trump Banda­ríkja­for­seti not­aði blóts­yrði á blaða­manna­fundi eftir fund hans með Úkra­ínu­for­seta, þegar talið barst að Venes­ú­ela.

FT greinir einnig frá því að Pútín hafi á fimmtu­dag lagt fyrir Trump nýtt til­boð: að Úkraína afhenti þá hluta Donbas í austri sem hún heldur enn, gegn því að fá lítil land­svæði á suð­ur­víg­stöðv­unum í Kherson og Saporisja. Það væri til­slökun frá til­boði sem Pútín setti fram í fundi með Trump í Alaska í ágúst, þar sem hann vildi frysta víg­lín­una ann­ars staðar ef Úkraína afhenti Donbas. Financial Times

Úkra­ínskir og evr­ópskir emb­ætt­is­menn sem FT ræddi við segja að slík eft­ir­gjöf í Donbas komi ekki til greina: „Að gefa [Donbas] til Rúss­lands án bar­daga er óásætt­an­legt fyrir úkra­ínsku þjóð­ina, og Pútín veit það,“ sagði Oleksandr Merezhko, for­maður utan­mála­ráðs þings­ins í Kænu­garði. Hann sagði að Pútín ýtti hug­mynd­inni „til að valda sundr­ungu innan Úkraínu og grafa undan ein­ingu okkar“. „Þetta snýst ekki um að fá meira land­svæði fyrir Rússa, þetta snýst um hvernig á að eyða okkur innan frá,“ bætti hann við. 

Þrír aðrir evr­ópskir emb­ætt­is­menn sem fengu upp­lýs­ingar um fund­inn stað­festu að Trump hefði varið stórum hluta fund­ar­ins í að áminna Selenskí, end­ur­taka rök Pútíns og hvetja hann til að sam­þykkja rúss­neska til­boðið. „Selenskí var mjög nei­kvæður“ eftir fund­inn, sagði einn emb­ætt­is­mann­anna, og bætti við að evr­ópskir leið­togar væru „ekki bjart­sýnir en raun­sæir“ um næstu skref.

Í yfir­lýs­ingu á sunnu­dag sagði Sel­en­skíj að „afdrátt­ar­laus skref“ þyrfti frá Banda­ríkj­unum, Evrópu og G20- og G7-ríkjum til að binda endi á stríðið.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    DTT var þekkt sprengiefni á sínum tíma. Segja má að Donald Trump sé einhver furðulegasti þjóðarleiðtogi sögunnar. Hann fer mjög frjálslega með vald sitt og virðist hafa mjög sterk tengsl við hergagnaframleiðendur í BNA.
    DT telur sér allar leiðir færar að ákveða örlög heilla þjóða. Með stuðningi hans hefur hann anað Benjamin Natanyaho út í að fremja mjög alvarlega stríðsglæpi fyrr botni Miðjarðarhafsins. Og sama virðist vera uppi á tengi gnum varðandi Pútín sem virðist hafa ótrúlega mikil áhrif á DT.
    Það var mjög furðuleg ákvörðun DT að ákveða að gtta þátttöku BNA í rekstri WHO og UNESCO. I hans huga er ófriður meira áríðandi en friðsamlegt samstarf alþjóðasamfélagsins á vegum Sameinuðu þjóðanna. Fyrrum voru forsetar BNA frmur friðsamir þó nokkrir gerðust býsna herskáir og má nefna Richard Nixon, Lyndon B. Johnseon og jafnv el Bush feðgana sem önuðu út í mjög umdeilda innrás í Írak á sínum tíma á vægast sagt mjög veikum forsendum.
    Nú er spurning um NATÓið. Við erum aðilar að þeim ósköpum siðan 1949 og margir telja það sjálfsagt mál en hafa á móti aðild að Evrópusambandinu einhverra hluta vegna. Þau eru allt annars eðlis, eru fremur viðskiptalegs eðlis og menningarlegs. En hernaður og hergagnaframleiðsla virðist vera megininntakið í nútímasamfélaginu og rugla sem flesta í ríminu. Öfgarnar hafa smám saman verið að grípa undirtökin í samfélaginu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár