Fundu metmagn ketamíns í Norrænu

Fimmtán kíló af ketamíni fund­ust við leit í bif­reið sem kom hingað til lands með Norrænu. Málið er annað tveggja umfagns­mik­illa fíkni­efna­mála sem tengj­ast far­þegum ferj­unnar í sept­em­ber.

Fundu metmagn ketamíns í Norrænu
Lögregla Rannsókn mál­anna er í höndum lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Myndin teng­ist frétt ekki beint. Mynd: Víkingur

Fimmtán kíló af ketamíni og fimm kíló af MDMA fund­ust við leit í bif­reið sem kom til lands­ins með Norrænu í sept­em­ber. Aldrei hefur fund­ist meira magn ketamíns í aðgerðum lög­reglu­yf­ir­valda hér á landi. 

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu vegna máls­ins segir að þrír ein­stak­lingar hafi verið hand­teknir vegna máls­ins, öku­maður og tveir aðrir far­þegar, og hafa þeir allir sætt gæslu­varð­haldi frá því rann­sókn hófst. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu eru allir hinir hand­teknu erlendir rík­is­borg­arar, en hluti þeirra búsettur hér á landi.

Málið er annað tveggja sem tengj­ast komu Norrænu til Seyð­is­fjarðar í sept­em­ber. Í hinu mál­inu var lagt hald á nær sjö kíló af kóka­íni, en rann­sókn þess máls er langt komin. Einn maður var hand­tek­inn á Seyð­is­firði í kjöl­farið, sam­kvæmt til­kynn­ingu lög­regl­unnar, og annar síðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sá sem hand­tek­inn var á Seyð­is­firði sætir gæslu­varð­haldi en hinn var lát­inn laus eftir hús­leit og yfir­heyrslu. 

Aðgerðin var unnin í sam­ein­ingu Lög­regl­unnar á Aust­ur­landi, Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Toll­gæsl­unnar. Þá komu einnig að mál­inu Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra og Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár