Trump segir samkomulag Hamas og Ísraels í höfn

Banda­ríkja­for­seti til­kynnti að sam­komu­lag hefði náðst á milli leið­toga Hamas og ísra­el­skra stjórn­valda um vopna­hlé. Sam­komu­lagið felur í sér lausn gísla í haldi Hamas og fang­els­aðra Palest­ínu­manna.

Trump segir samkomulag Hamas og Ísraels í höfn
Endalok? Trump segir að sam­komu­lagið sé skref í átt að enda­lokum tveggja ára stríðs Ísraels á Gaza. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, greindi frá því í kvöld að Ísrael og Hamas hefðu náð sam­komu­lagi um fyrsta áfanga Gaza-frið­ar­plans hans. Hann lýsti því sem „sögu­legu og for­dæma­lausu“ skrefi í átt að enda­lokum tveggja ára  stríðs.

Að sögn Trump felur sam­komu­lagið í sér að  Hamas-sam­töki sleppi öllum gíslum úr haldi á meðan Ísrael dragi her­sveitir sínar til baka að fyr­ir­fram ákveð­inni línu. Yfir­lýs­ingin kom eftir við­ræður í Egypta­landi þar sem rætt var um tutt­ugu punkta frið­ar­plan for­set­ans sem nú hefur leitt til sam­komu­lags.

„Ég er mjög stoltur af því að til­kynna að Ísrael og Hamas hafa bæði sam­þykkt fyrsta áfanga frið­ar­plans­ins okkar,“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­miðli sínum, Truth Social.

„Þetta þýðir að ALLIR gísl­arnir verða leystir úr haldi mjög fljót­lega, og Ísrael mun draga her sinn til baka að sam­kominni línu sem fyrstu skrefin í átt að sterkum, var­an­legum og eilífum friði,“ sagði hann enn fremur.

Trump þakk­aði jafn­framt milli­göngu­að­il­unum Katar, Egypta­landi og Tyrk­landi og bætti við: „SÆLIR ERU FRIÐFLYTJENDUR!“

Samkvæmt egypskum fjöl­miðlum sem tengj­ast rík­inu hafa milli­göngu­menn stað­fest að Ísrael og Hamas hafi náð sam­komu­lagi um fanga­skipti og um að opna leiðir fyrir mann­úð­ar­að­stoð inn í Gaza.

Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, sagði að hann hygð­ist með „hjálp Guðs“ koma gísl­unum heim.

Trump greindi fyrr í kvöld frá því að hann kynni að fara til Mið­aust­ur­landa síðar í vik­unni þar sem sam­komu­lagið væri „mjög nærri því að nást“.

Í dramat­ískri upp­á­komu sáu frétta­menn AFP banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­ann Marco Rubio grípa inn í við­burð í Hvíta hús­inu til að afhenda Trump bréf með brýnum upp­lýs­ingum um fram­gang við­ræðn­anna í Egypta­landi.

„Ég gæti farið þangað undir lok vik­unnar, kannski á sunnu­dag,“ sagði Trump og bætti við að hann væri „lík­leg­ast“ að fara til Egypta­lands, en myndi jafn­framt íhuga að heim­sækja stríðs­hrjáða Gaza-strönd­ina. 

Frið­ar­plan Trump felur í sér vopna­hlé, lausn allra gísla sem haldið hefur verið í Gaza, afvopnun Hamas og stig­vax­andi brott­flutn­ing ísra­el­skra her­manna úr svæð­inu.

Tengda­sonur for­set­ans, Jared Kushner, og Mið­aust­ur­landa­sendi­boði hans, Steve Witkoff, komu fyrr til Egypta­lands til að taka þátt í við­ræð­unum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár