Ragnhildur tekur við sem ritstjóri Kveiks

Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir, frétta­stjóri á Heim­ild­inni, tekur við sem nýr rit­stjóri Kveiks í októ­ber.

Ragnhildur tekur við sem ritstjóri Kveiks
Nýr rit­stjóri Ragn­hildur tekur við hjá Kveik um miðjan mán­uð­inn. Mynd: Golli

Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir, frétta­stjóri á Heim­ild­inni, tekur við sem nýr rit­stjóri frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Kveiks á RÚV í októ­ber. Hún var val­inn úr hópi átta umsækj­enda.

Valið stóð á milli hennar, Tryggva Aðal­björns­sonar, starf­andi rit­stjóra Kveiks, og Inga Freys Vil­hjálms­sonar, umsjón­ar­manns Þetta helst á Rás 1, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar. Nið­ur­staða í ráðn­ing­ar­ferl­inu lá fyrir í dag. 

Ragn­hildur er með meist­ara­próf með sér­stakri áherslu á rann­sókn­ar­blaða­mennsku frá Columbia háskóla í New York. Auk þess að starfa á Heim­ild­inni hefur Ragn­hildur skrifað fyrir Morg­un­blaðið og unnið verk­efni fyrir banda­ríska tíma­ritið Forbes.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni er fjallað um atburði sem tengj­ast Heim­ild­inni og starfs­mönnum fjöl­mið­ils­ins beint.
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár