Spyr af hverju peningarnir kláruðust svona hratt og hvað verði um Möltu-félagið

Reynd­asti skipta­stjóri lands­ins í þrota­búum sem snúa að föllnum flug­fé­lögum segir áhuga­verð lög­fræði­leg álita­mál uppi varð­andi fall Play.

Spyr af hverju peningarnir kláruðust svona hratt og hvað verði um Möltu-félagið
Einar Örn, for­stjóri Play og Sveinn Andri Lög­mað­ur­inn Sveinn Andri Sveins­son býr yfir ein­stakri reynslu þegar kemur að því að leysa upp gjald­þrota flug­fé­lag. Mynd: Samsett / Heimildin

„Það sem er kannski helst óhefð­bundið við þetta þrot er hvað pen­ing­arnir úr skulda­bréfa­út­boð­inu klár­uð­ust hratt og svo þessi gern­ingur með dótt­ur­fé­lagið,“ segir Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður og skipta­stjóri þrota­bús WOW Air. Hann er lík­lega sá lög­maður sem hefur mesta reynslu af þroti flug­fé­laga í heimi lög­manna og hefur fylgst vel með þróun mála hjá falli Play Air sem fór í þrot í byrjun vik­unnar. 

Það var snemma á mánu­dag­inn sem for­stjóri Play, Einar Örn Ólafsson, til­kynnti um rekstr­ar­stöðvun flug­fé­lags­ins sem hafði miklar afleið­ingar. Þúsundir voru stranda­glópar víða um heim og fjögur hund­ruð starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins missa vinn­una af þessum sökum. Þrotið kom mörgum í opna skjöldu, þrátt fyrir að skulda­staða þess hafi verið lengi þung. Félagið hefur tapað um 27 millj­örðum frá stofnun.

Aftur á móti fór fram skulda­bréfa­út­boð fyrir skömmu og söfn­uð­ust þá á þriðja millj­arð króna og töldu flestir að félagið væri rekstr­ar­hæft út árið af …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár