Framsókn mælist inni á ný

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með tæp­lega sex pró­sent fylgi í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Flokk­ur­inn fengi fjóra full­trúa kjörna. Sam­fylk­ingin er stærst með 34 pró­senta fylgi.

Framsókn mælist inni á ný
Sótt að Sigurði Sigurður Ingi Jóhanns­son er for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins en nokkuð hefur verið kallað eftir því innan flokks­ins að hann annað hvort end­ur­nýji umboð sitt fyrr en til stóð eða nýr for­maður verði val­inn. Mynd: Golli

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 5,8 pró­senta stuðn­ing í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Flokk­ur­inn fengi fjóra full­trúa kjörna, væru þetta nið­ur­stöður kosn­inga, en flokk­ur­inn hefur mælst í eins­konar fall­bar­áttu und­an­farin miss­eri. 

Í síð­asta Þjóð­ar­púlsi mæld­ist flokk­ur­inn með 4,5 pró­sent fylgi og utan þings. Það er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkurn tíma mælst með hjá Gallup.

RÚV greindi fyrst frá nið­ur­stöð­unum í kvöld. 

Sam­fylk­ingin mælist sem fyrr stærsti flokk­ur­inn og hefur nokkra yfir­burði í mæl­ing­unni. Flokk­ur­inn mælist með 34 pró­senta fylgi og 24 full­trúa. Viðreisn, sem er þriðji stærsti flokk­ur­inn, mælist með 12,6 pró­sent stuðn­ing og 9 full­trúa á þingi. Það þýðir að flokk­arnir gætu myndað tveggja flokka meiri­hlut á þingi. 

Flokkur fólks­ins, sem er sam­starfs­flokkur Sam­fylk­ingar og Við­reisnar í núver­andi meiri­hluta, mælist með 6,9 pró­sent og fjóra full­trúa í Þjóð­ar­púls­inum. Meiri­hlut­inn stendur því sterkum fótum, miðað við þetta. 

Sjálf­stæð­is­flokkur er nærst stærstur í könn­un­inni með 19,5 pró­senta fylgi og 14 full­trúa. Mið­flokk­ur­inn mælist með 11,8 pró­sent og átta full­trúa. 

Vinstri græn og Píratar, sem duttu af þingi í kosn­ing­unum í nóv­em­ber, mæl­ast með 3,6 og 2,9 pró­sent, og næði hvor­ugur flokk­ur­inn kjöri á þing. Það myndu Sós­í­alistar ekki heldur gera með 2,1 pró­senta fylgi.

Væru þetta nið­ur­stöður kosn­inga myndu Sós­í­alistar hins vegar falla af fjár­lögum og ekki fá fram­lag úr rík­is­sjóði til að reka sig, líkt og flokk­ur­inn hefur gert und­an­farin kjör­tíma­bil.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár