Segja Rússa á bakvið dularfulla dróna

Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar telur Rússland lík­lega á bak við fjölda dróna sem hafa truflað flug­velli og hern­að­ar­mann­virki í Noregi og Danmörku. Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, segir Rússland vera „ógn við öryggi Evrópu“. NATO hefur aukið við­búnað á Eystra­salt­svæð­inu í kjöl­farið.

Segja Rússa á bakvið dularfulla dróna
For­sæt­is­ráð­herrar benda á Rússland Mette Frederik­sen og Ulf Kristers­son telja Rússland lík­leg­ast á bak við dul­ar­fulla dróna sem truflað hafa flug­vellir og hern­að­ar­mann­virki í Noregi og Danmörku.

Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, segir að Rússland sé lík­lega á bak við dul­ar­fullar dróna­ferðir yfir nokkrum flug­völlum á Norð­ur­löndum í aðdrag­anda leið­toga­fundar Evr­ópu­sam­bands­ins í Kaup­manna­höfn.

Frá 22. sept­em­ber hefur dróna­flug, einkum í Noregi og Danmörku, leitt til þess að flug­völlum sé lokað tíma­bundið.

Í við­tali við sjón­varps­stöð­ina TV4 sagði Kristers­son að „líkur á því að þetta sé Rússland að senda skila­boð til landa sem styðja Úkraínu séu mjög miklar,“ en bætti við að eng­inn gæti full­yrt með vissu.

Rússneskir drónar staðfestir í Póllandi

Kristers­son tók fram að Svíar hefðu stað­fest að drónar sem fóru inn í pólska loft­helgi fyrr í sept­em­ber væru rúss­neskir. „Allt bendir til Rúss­lands, en ríki eru var­kár við að benda á til­tekið land nema þau séu viss. Í Póllandi vitum við að það var þannig,“ sagði hann.

„Allt bendir til Rúss­lands“

Um helg­ina sáust drónar einnig yfir dönskum hern­að­ar­mann­virkjum tvö kvöld í röð. Kaup­manna­höfn verður vett­vangur ESB-fundar á mið­viku­dag og fimmtu­dag, og til að tryggja öryggi til­kynntu dönsk yfir­völd á sunnu­dag að almennt dróna­flug yrði bannað til föstu­dags. Brot á regl­unni getur varðað sektum eða allt að tveggja ára fang­elsi.

„Rússland er ógnin“

Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, sagði í vik­unni að „eitt land stæði aðal­lega að ógn við öryggi Evrópu, og það væri Rússland“. Stjórn­völd í Moskvu svör­uðu með því að „hafna alfarið“ öllum ásök­unum um þátt­töku.

Dróna­flugið bæt­ist við brot á loft­helgi Póllands og Rúmeníu af hálfu dróna og inn­brot rúss­neskra orr­ustu­þota í loft­helgi Eist­lands. Atburð­irnir hafa aukið spennu á svæð­inu á sama tíma og inn­rás Rússa í Úkraínu heldur áfram. NATO hefur sagt að það hafi „aukið við­búnað“ á Eystra­salt­svæð­inu í kjöl­far atvikanna.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Pétur Kristjánsson skrifaði
    Lýðurinn á að trúa því að Rússland standi að baki drónafluginu. Sænski Úlfurinn leggur ekki fram nein gögn sem styðja það.
    Ameríska leyniþjónustan veit vafalaust hverjir fljúga drónunum, en segir ekki neitt. Það segir að Rússar tengjast ekki drónafluginu.
    Stjórnbúnaður drónanna sem flugu aðeins inn í Pólland var að öllum líkindum truflaður, þannig að þeir fóru af leið.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár