Fólki hætti til að sjá tæknibreytingar sem stærri byltingar en þær eru

Kjartan Ólafsson, rann­sókna­lektor og sér­fræð­ingur í miðla­notkun ungs fólks, segir engan almenni­legan vís­inda­legan grund­völl fyrir því að tala um fíkn þegar tækn­i­notkun er ann­ars vegar. Hann telur að alla jafna eigi fólk heil­brigt sam­band við snjall­sím­ann.

Fólki hætti til að sjá tæknibreytingar sem stærri byltingar en þær eru
Rann­sakar miðla­notkun Kjartan segir til­hneig­ingu til að gera tækni ábyrga fyrir hlutum sem hún beri ef til vill ekki ábyrgð á. Mynd: Auðunn Níelsson

Kjartan Ólafsson, rann­sókna­lektor við HÍ og sér­fræð­ingur í miðla­notkun ungs fólks, segir að fólki hætti stundum til að sjá til­komu snjall­síma sem meiri bylt­ingu en hún sé í reynd. Hverri nýrri tækni­þróun fylgi ótti – til dæmis prent­tækni, útvarpi og sjón­varpi.

„Þegar sjón­varpið kom til sög­unnar þá voru rosa áhyggjur af því. Hvaða áhrif það hefði að hafa svona mik­inn aðgang að fréttum og afþr­ey­ingu. Svo kom inter­netið. Þetta er alltaf að breyt­ast. Okkur hættir til að sjá þetta sem meiri breyt­ingu á hverjum tíma en það svo reyn­ist vera.“

Auðvitað sé aukin tækn­i­notkun ekki án sinna galla. „En mér finnst engin ástæða til þess að horfa á þessar tækni­lausnir sem ann­að­hvort góðar eða slæmar. Þær hafa ákveðna eig­in­leika. Það er hægt að nýta þær í ákveðnum til­gangi.“ 

Ekki endilega óverðugt að horfa á Youtube

Kjartan segir hug­mynd­ina um fíkn í tengslum við tækn­i­notkun mjög umdeilda. …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Þór Ólafsson skrifaði
    Auðvitað eru öpp ekki fíkniefni, en sum öpp (s.s. margir samfélagsmiðlar) virkja efni í heilanum sem veldur fíkn, dópamín.

    Þetta kom nú bara fram í vísindagrein sem var birt í virtasta vísindatímariti heims í fyrra Science, svo þessi gaur er ekki mikið að fylgjast með (hér er linkur á skýringarmynd á facebook síðu Science):
    https://www.facebook.com/photo.php?fbid=796127799045858&id=100059459352979&set=a.269578968367413
    0
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      Allt skemmtilegt sem við gerum virkjar dópamín. Eigum við þá að hætta því öllu?
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Snjallsímar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár