Trump ríður röftum hjá Sameinuðu þjóðunum

Banda­ríkja­for­seti heldur ræðu fyrir leið­togum heims­ins í Sam­ein­uðu þjóð­unum. Hann hótar að sprengja upp fíkni­efna­smygl­ara og sakar Sam­ein­uðu þjóð­irnar um að fjár­magna inn­flutn­ing fólks.

Trump ríður röftum hjá Sameinuðu þjóðunum

Banda­ríkja­for­seti hefur farið mik­inn í ásök­unum, hót­unum og öðrum stór­yrðum í ræðu sinni fyrir alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í dag, þar sem leið­togar ann­arra ríkja hlýddu á.

Hann afneit­aði lofts­lags­breyt­ingum, hót­aði að drepa fíkni­efna­smygl­ara og full­yrti að kristin trú­ar­brögð væru þau „ofsótt­ustu í öllum heim­inum“.

„Stór hluti heims­ins hefur not­fært sér Banda­ríkin, en ekki meir,“ sagði hann.

Þrátt fyrir að tíma­tak­mörk séu á ræðum leið­tog­anna fyrir alls­herj­ar­þing­inu virðir Trump þau ekki. Hann er kom­inn með meira en þre­faldan ræðu­tíma, án þess að rautt ljós hafi farið í gang á ræðupúlt­inu, sem tak­markar ræðu­tíma ann­arra leið­toga heims­ins.

Aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna sagði fyrr í dag í ræðu sinni að grunn­gildi sam­tak­anna væri „í her­kví“. 

Sakar SÞ um að fjármagna árás

Trump sak­aði í ræðu sinni Sam­ein­uðu þjóð­irnar um að „fjár­magna árás á Vest­ur­lönd“ í gegnum straum flótta­manna. 

Ásökunin kom fram í ræðu hans fyrir alls­herj­ar­þingi SÞ, þar sem hann skaut föstum skotum …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Hvernig gat það verið að kolruglaður maður sé valinn forseti?
    1
    • GH
      Greg Hill skrifaði
      Það sem þarf að skilja er að fólkið sem stendur á bak við þetta af kynískum ástæðum myndi glöð vilja hafa kakkalakka í embætti - hann er bara brúða þeirra sem gerir hvað sem þeim sýnist á bak við tjöldin.
      0
    • Kristbjörn Árnason skrifaði
      Það er greinilega eitthvað mjog alvarlegt Bandarísku skólakerfi þegar þetta hættu-legasta herveldi heimsins getur kosið heimskingja sem forseta sem virðist komast upp með að brjóta lög í landi sínu og jafnvel stjórnarskrá ríkisins
      0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Brjálæðingur og hefur alltaf verið. Ekki batnar hann.
    3
  • RB
    Reynir Böðvarsson skrifaði
    Maðurinn er brjálaður lygari.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár