„Nettengd truflun“ hægir á flugsamgöngum í Evrópu

Helstu flug­vellir Evrópu urðu fyrir tölvu­árás sem lamað hefur sjálf­virk inn­rit­unar- og far­ang­ur­s­kerfi. Tölu­verðar tafir hafa orðið og flug­ferðum verið aflýst, einkum í Brussel, en Heathrow og flug­vellir í Berlín hafa einnig orðið fyrir áhrifum. Farþegar Icelandair hafa fengið hand­skrifuð brott­far­ar­spjöld.

„Nettengd truflun“ hægir á flugsamgöngum í Evrópu
Stífla Farþegar fylgj­ast með staf­rænum upp­lýs­inga­skjá um inn­ritað eða óinn­ritað flug á Berlin Brand­en­burg BER-flug­velli Willy-Brandt í Schoenefeld, suð­austur af Berlín,í morgun. Erf­ið­lega hefur gengið að inn­rita far­þega í flug þar í dag. Mynd: Tobias SCHWARZ / AFP

Helstu flug­vellir Evrópu, þar á meðal í Brussel, Berlín og Heathrow í London, urðu í dag fyrir „nettengdri truflun“ sem hefur haft víð­tæk áhrif á sjálf­virk inn­rit­unar- og far­ang­ur­saf­hend­ing­ar­kerfi og olli töfum.

„Við höfum orðið vör við truflun af völdum netárásar á MUSE-hug­búnað okkar á til­teknum flug­völlum,“ sagði flug­vall­ar­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Collins Aerospace í yfir­lýs­ingu.

Að minnsta kosti þrír stærstu flug­vellir Evrópu greindu frá röskun á starf­semi og vör­uðu við sein­k­unum og aflýs­ingum. Collins sagði áhrifin „tak­markast við raf­ræna inn­ritun og far­ang­ur­saf­hend­ingu“ en þau mætti vinna á með hand­virkri inn­ritun.

Á flug­vell­inum í Brussel var taf­irnar tals­verðar: tíu brott­farir voru felldar niður og 17 flug seink­uðu um meira en klukku­stund eftir að kerfið varð fyrir árás aðfara­nótt föstu­dags. Flug­völl­ur­inn sagði í morgun að vand­inn væri óleystur og hefði „veru­leg áhrif“ á áætlun. Samkvæmt BBC hafði Eurocontrol fyr­ir­skipað að helm­ingur flug­ferða til og frá Brussel yrði felldur niður á milli …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár