Bandaríkin stöðvuðu ályktun öryggisráðsins um vopnahlé á Gaza

„Óásætt­an­legt,“ segir full­trúi Banda­ríkj­anna um ákall um vopna­hlé á Gaza. Flýjandi íbúar lýsa áfram­hald­andi hryll­ingi undir árásum.

Bandaríkin stöðvuðu ályktun öryggisráðsins um vopnahlé á Gaza
Nei við vopna­hléi Vara­full­trúi Banda­ríkj­anna í mál­efnum Mið­aust­ur­landa, Morgan Ortagus, ávarpar fund Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna um ástandið í Gaza, á höf­uð­stöðvum SÞ í New York 18. sept­em­ber 2025. Hún hafn­aði nýj­ustu álykt­un­ina sem kall­aði eftir vopna­hléi og auk­inni mann­úð­ar­að­stoð til Gaza, sem meiri­hluti styður þrátt fyrir neit­un­ar­vald Banda­ríkj­anna. Mynd: AFP

Full­trúar Banda­ríkj­anna í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna komu í dag í veg fyrir að ráðið sam­þykkti ályktun um taf­ar­laust vopna­hlé í Gaza, þar sem ísra­elski her­inn stendur fyrir mann­skæðri inn­rás í Gazaborg sam­hliða því sem alþjóða­stofn­anir hafa skil­greint sem þjóð­ar­morð á Palest­ínu­mönnum.

Álykt­unin kvað á um „kröfu um fyr­ir­vara­laust, skil­yrð­is­laust og var­an­legt vopna­hlé í Gaza sem allir aðilar virða“. Sömu­leiðis fólst í álykt­un­inni að mann­úð­ar­að­stoð yrði hleypt á svæðið. Þetta féllust Banda­ríkin ekki á og beittu neit­un­ar­valdi sínu í ráð­inu. Banda­ríkin hafa neit­un­ar­vald í ráð­inu, sem og Bretland, Kína, Frakk­land og Rússland.

„Banda­ríkin hafna þess­ari óásætt­an­legu ályktun. Það er löngu tíma­bært að Hamas leysi alla gísla strax úr haldi og gef­ist sam­stundis upp. Banda­ríkin munu áfram vinna með sam­starfs­að­ilum sínum að því að binda enda á þessa hrylli­legu átök,“ sagði full­trúi Banda­ríkj­anna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, Morgan Ortagus, áður en hún beitti neit­un­ar­vald­inu.

Banda­ríkin beittu síð­ast neit­un­ar­valdi gegn sam­bæri­legri ályktun í júní síð­ast­liðnum.

Fyrr í dag tóku Banda­ríkin þó þátt í að for­dæma loft­árás Ísraels í Katar sem átti sér stað í síð­ustu viku.

Innrás í Gaza-borg

Ísra­elski her­inn sendi í dag skrið­dreka og orr­ustu­þotur til árásar á Gaza-borg, vegna fyr­ir­hug­aðrar her­töku. Ísraelsk yfir­völd hvöttu Palest­ínu­menn til að flýja suður. Herinn til­kynnti um frá­fall fjög­urra her­manna.

Blaða­menn AFP og sjón­ar­vottar sáu stöðugan straum fólks leggja leið sína suður á við, gang­andi, á öku­tækjum og vögnum, með fábrotnar eigur sínar staflaðar upp.

„Það er stór­skota­hríð, loft­árásir, skot­hríð úr fjór­hjóla­drónum og öðrum drónum. Sprengjuregnið hættir aldrei,“ sagði Aya Ahmed, 32 ára, sem leitar skjóls með 13 ætt­ingjum sínum í Gaza-borg.

„Heim­ur­inn skilur ekki hvað er að ger­ast. Þeir (Ísraelar) vilja að við flytjum suður — en hvar eigum við að búa? Það eru engar tjald­búðir, engin far­ar­tæki, engir pen­ingar.“

Palest­ínu­menn segja að kostn­að­ur­inn við að kom­ast suður hafi rokið upp, í sumum til­vikum yfir 1.000 Banda­ríkja­dali.

„Aðstæð­urnar eru ólýs­an­legar — mann­fjöldi út um allt, spreng­ingar óma, konur og karlar gráta og öskra á meðan þau ganga með eigur sínar,“ sagði Shadi Jawad, 47 ára, og lýsti þrauta­göngu fjöl­skyldu sinnar þegar þau flúðu heim­ili sitt á mið­viku­dag.

„Guð minn, sendu eld­flaug til að taka okkur burt og lina kvöl­ina,“ bætti hann við.

Aðgerð­irnar hafa vakið reiði á alþjóða­vett­vangi, þar sem land­svæðið er þegar rústir einar eftir nær tveggja ára stríð og hung­ursneyð, sem SÞ hefur lýst yfir, ríkir í Gaza-borg og nágrenni.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Öflugasta herveldi heims er þarna að leika sér og notar giðingana til þess að framkvæma verknaðinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár