Segir að eitrað hafi verið fyrir Navalní

Yulia Navalnaja, ekkja Alexeis Navalní, segir rann­sóknir á líf­sýni sem smyglað var frá Rúss­landi sýna að eitrað hafi verið fyrir eig­in­manni hennar. Hann hafi verið drep­inn í rúss­nesku fang­elsi. Stjórn­völd í Kreml hafna ásök­unum.

Segir að eitrað hafi verið fyrir Navalní
„Öfga­maður“ Navalní og spill­ing­ar­stofnun hans hafa verið skil­greind sem „öfga­sam­tök“ af rúss­neskum yfir­völdum og hefur ekkja hans, Yulia Navalnaja, verið sett á lista yfir „hryðju­verka­menn og öfga­menn“. Í Rúss­landi getur það varðað sektum eða allt að fjög­urra ára fang­elsi við ítrekuð brot að minn­ast á hann eða stofn­un­ina án þess að geta þeirrar skil­grein­ingar. Mynd: Ralf Hirschberger / AFP

Eig­in­kona rúss­neska stjórn­ar­and­stæð­ings­ins Alexeis Navalní, Yulia Navalnaja, segir að rann­sókn á lífs­sýni úr eig­in­manni sínum hafi leitt í ljós að eitrað hafi verið fyrir honum. Líf­sýn­inu var smyglað frá Rúss­landi en Navalní dó á meðan hann afplán­aði fang­els­is­dóm í Síberíu í febr­úar á síð­asta ári. 

Navalní, sem lengi var helsti gagn­rýn­andi Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta, lést við dul­ar­fullar aðstæður. Hann hafði hlotið nítján ára fang­els­is­dóm, sem víð­ast hvar er talin hafa verið hefnd fyrir andóf sitt gagn­vart rúss­neskum stjórn­völdum. 

„Rann­sókn­ar­stofur í tveimur löndum komst að þeirri nið­ur­stöðu að Alexei hafi verið myrtur.“

Navalní hafði með her­ferð sinni gegn spill­ingu í Rúss­landi safnað saman hund­ruðum þús­unda mót­mæl­enda víða um Rússland og afhjúpað meintar eignir og spill­ingu í innsta hring Pútíns. Banda­menn hans telja að hann hafi verið myrtur í fang­els­inu, en yfir­völd í Moskvu hafa aldrei gefið full­nægj­andi skýr­ingar á and­lát­inu. Þau sögðu ein­ungis að hann hefði veikst þegar hann var í fang­els­is­garð­inum þann 16. febr­úar 2024.

„Banda­mönnum okkar tókst að útvega og flytja líf­sýni Alexeis úr landi,“ sagði Navalnaja í mynd­skeiði á sam­fé­lags­miðlum. „Rann­sókn­ar­stofur í tveimur löndum komst að þeirri nið­ur­stöðu að Alexei hafi verið myrtur. Nánar til­tekið: eitrað var fyrir honum.“

Hún gaf engar nán­ari upp­lýs­ingar um hvaða sýni hefði verið aflað eða nið­ur­stöður próf­ana, en hvatti rann­sókn­ar­stof­urnar til að birta nið­ur­stöður sínar og skýra hvaða eitur hefði verið notað.

Navalnaja birti einnig óstað­festar myndir sem hún sagð­ist hafa fengið úr klefa hans eftir and­látið. Þær sýndu upp­köst á gólf­inu og hún hélt því fram að vitn­is­burður fanga­varða bæri með sér að Navalní hefði fengið krampa áður en hann féll til jarðar.

Áður hafði verið eitrað fyrir Navalní með tauga­eitr­inu Novit­sjok árið 2020, þegar hann var á kosn­inga­ferða­lagi í Síberíu. Hann var þá fluttur með neyð­ar­flugi til Þýska­lands þar sem hann lá í marga mán­uði á sjúkra­húsi áður en hann náði heilsu.

Þegar hann sneri aftur til Rúss­lands í jan­úar 2021 var hann hand­tek­inn og síðar dæmdur fyrir „öfga­starf­semi“. Hann hélt áfram að tala gegn Pútín og for­dæma inn­rás­ina í Úkraínu úr fang­elsi.

„Vladímír Pútín ber ábyrgð á morði eig­in­manns míns, Alexeis Navalní“

Rússnesk stjórn­völd héldu því fram að hann hefði dáið skyndi­lega eftir að hafa veikst við göngu í fang­els­inu eftir hádeg­is­mat. Eftir and­látið neit­uðu yfir­völd um tíma að afhenda lík hans til ætt­ingja, sem jók tor­tryggni meðal stuðn­ings­manna hans.

Navalnaja hefur ætíð haldið því fram að eig­in­maður hennar hafi verið myrtur að skipan Pútíns. „Vladímír Pútín ber ábyrgð á morði eig­in­manns míns, Alexeis Navalní,“ sagði hún í dag.

Stjórn­völdí Kreml hafna ásök­un­unum.

Aðgerðir rúss­neskra stjórn­valda héldu áfram að bein­ast gegn stuðn­ings­mönnum Navalnís eftir and­látið. Navalnaja var til að mynda sett á lista yfir „hryðju­verka­menn og öfga­menn“ og lög­menn hans sem og blaða­menn sem fjöll­uðu um mál hans hafa verið dæmdir til margra ára fang­els­is­vistar.

Flestir ætt­ingjar hans og nán­ustu sam­starfs­menn hafa um ára­bil búið í útlegð. Stjórn­ar­and­staðan í Rúss­landi, klofin og veik, hefur átt erfitt með að ná fót­festu í útlegð eftir dauða Navalnís.

Mótmæli gegn Pútín innan Rúss­lands hafa orðið afar fátíð eftir inn­rás­ina í Úkraínu í febr­úar 2022. Kreml hefur herjað á gagn­rýnendur og í raun gert það ólög­legt að gagn­rýna bæði stjórn­ina og inn­rás­ina.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár