Ísrael ver árásir á Katar eftir gagnrýni frá Trump

Fulltrúi Ísraels segir loft­árásir á Hamas-leið­toga í Katar hafa verið rétt­læt­an­legar. Katar seg­ist hafa fengið við­vörun of seint. Sex Hamas-liðar og örygg­is­vörður voru drepnir í árás­unum, sem for­sæt­is­ráð­herra Ísraels segir hafa verið svar við skotárás í Jer­úsalem.

Ísrael ver árásir á Katar eftir gagnrýni frá Trump
Ísra­els­her gerði árás á bygg­ingu í Doha, höf­uð­borg Katar, þann 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Tals­maður hers­ins sagði aðgerðum hafa verið beint að æðstu leið­togum Hamas. Mynd: Jacqueline PENNEY / AFPTV / AFP

Fulltrúi Ísraels hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum rétt­lætti í dag árásir á leið­toga Hamas í Katar og sagði að þær hefðu verið „rétt“ ákvörðun, þrátt fyrir sjald­gæfa athuga­semd Banda­ríkja­for­seta við aðgerðum Ísra­els­hers. 

Hvíta húsið til­kynnti að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefði ekki verið sam­mála ákvörðun Ísraels um að ráð­ast til atlögu á þriðju­dag og að Banda­ríkin hefðu varað Katar við fyr­ir­hug­uðum loft­árásum. Katar, sem hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í sátta­til­raunum vegna stríðs­ins í Gaza, sagði hins vegar að við­vör­unin frá Washington hefði borist þegar árásin var þegar hafin. 

Danny Danon, sendi­herra Ísraels hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, sagði í útvarps­við­tali í dag að Ísrael væri ekki bundið af hags­munum Banda­ríkj­anna í öllum málum.

„Við vinnum í sam­ráði, þeir veita okkur ótrú­legan stuðn­ing og við kunnum að meta það, en stundum tökum við ákvarð­anir og látum Banda­ríkin svo vita,“ sagði hann, sam­kvæmt AFP.

„Þetta var ekki árás á Katar; þetta var …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár