Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera í húsnæðismálum þennan þingvetur?

„Við erum að taka hús­næð­is­málin föstum tökum,“ segir Inga Sæland félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Meðal boð­aðra aðgerða eru breyt­ingar á skamm­tíma­leigu, umbætur í hlut­deild­ar­lána­kerf­inu og end­ur­skoðun á bygg­ing­ar­reglu­gerð.

Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera í húsnæðismálum þennan þingvetur?
Inga Sæland „Við erum að taka hús­næð­is­málin föstum tökum,“ segir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Mynd: Víkingur

„Við erum að taka hús­næð­is­málin föstum tökum,“ sagði Inga Sæland félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra á blaða­manna­fundi í vik­unni þegar þing­mála­skrá var kynnt fyrir nýhafið lög­gjaf­ar­þing. 

Hús­næð­is­málin hafa verið fyr­ir­ferð­ar­mikil und­an­farið og lýsti Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hús­næð­is­mark­að­inum sem mjög sveiflu­kenndum í við­tali í Kast­ljósi í lok ágúst. Hann sagði rík­is­stjórn­ina hafa mjög skýran vilja til að hverfa frá „skamm­tíma­lausnum og plástrum“ og lagði áherslu á að styrkja fram­boð til lengri tíma. 

Heim­ildin tók saman þær áherslur sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa haft síðan í alþing­is­kosn­ingum í nóv­em­ber og hvers megi vænta á nýju þingi. 

Kerfisbreytingar, eignaíbúðakerfi og ungt fólk

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir lögðu allir áherslu á að koma mála­flokknum í fastar skorður í alþing­is­kosn­ingum í nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Sam­fylk­ingin var með ítar­lega stefnu í hús­næð­is­málum þar sem meðal ann­ars var fjallað um bráða­birgða­að­gerðir og kerf­is­breyt­ingar „til að halda aftur af hækkun fast­eigna- og leigu­verðs“. 

Flokkur fólks­ins boð­aði nýtt …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    Við þurfum að losna úr viðjum séreignarstefnunnar í húsnæðismálum
    Umræða um húsnæðismál er afgerandi í lífi ungs fólks og leigjenda nú um stundir. Í rauninni er það umhugsunarvert, hvers vegna húsnæðismál séu í þvílíku ólestri eins og raun ber vitni.
    Það sem hingað til í sögu lýðveldisins, hefur borið uppi alla umræðu um húsnæðismál, er þetta sífellda tal um séreignarstefnu í húsnæðismálunum, stefnu sem er dauðadæmd fyrir alla alþýðu manna; a.m.k. meðan krónan rýrnar í hverjum mánuði (eða svo gott sem). Auðvitað á ekki að snúa bakinu við séreignarstefnunni, en hún á að vera aukatriði í pólitíkinni og vera aðgengileg fyrir þá, sem telja sig geta staðið undir lánum og afborgunum og komast í gegnum nálaraugað hjá bönkunum og telja sig óhulta fyrir hækkandi vöxtum í peningastefnu málum. Þ.e.a.s. miklum minnihluta þjóðarinnar. EN HVAÐ UM ALLA HINA?
    Við getum ímyndað okkur hjón, sem búa í litlu þorpi úti á landi; konan vinnur myrkranna á milli í frystihúsinu og eiginmaðurinn hefu líka sínar tekjur af fiskvinnu; stundum af skaki á báti með félögum sínum í frítímum og um helgar; en líka í frystihúsinu. Með tekjum sínum geta þau fest sér raðhús, sem stendur autt í þorpinu og er í eigu opinberra aðila og hafa komizt í gegnum nálarauga bankans. Örfáum ársfjórðungum seinna, er draumurinn brostinn. Kvótinn seldur úr þorpinu, frystihúsinu lokað og atvinnuleysi og vonarvöl framundan. – Þetta er því miður örlög allt of margra fjölskyldna. NÚTÍMA ÁTTHAGAFJÖTRAR!
    Í húsnæðismálum verða stjórnvöld að gera nokkrar reglur gildandi:
    Gagnvart einstaklingum.
    1. Vaxtabætur skulu einungis greiddar til húseiganda á lögheimili hans, en ekki af t.d. 3 íbúðum sama eiganda.
    2. Búsetuskylda skal vera á eigin íbúð til að koma fyrir, að einstaklingar „safni“ íbúðum og verji sig á þann hátt gagnvart hinni ónothæfu ísl krónu.
    Gagnvart leigufélögum og einstaklingum þar sem við á:
    1. Allar íbúðir skulu vera í útleigu.
    2. Leiguverð á fermetra, skal ákvarðast af aldri húsnæðisins.
    3. Lykilgjald fyrir hverja íbúð skal vera sama og 3ja mánaða húsaleiga.
    4. Leigusamningur skal vera óuppsegjanlegur.
    5. Allir fylgihlutir, sem innifaldir eru í leigunni skv. leigusamningi, skal leigusali viðhalda.
    6. Uppsagnarfrestu leigutaka skal vera 3 mánuðir.
    7. Lykilgjald er ekki fyrirfram greidd húsleiga. Heldur eingöngu notuð til þess að betrumbæta spjöll á leiguíbúðinni, sem rekja má til leigutaka.
    Nú skulum við líta á hvern punkt fyrir sig.
    1 Ef íbúð/íbúðir í eigu leigufélags standa auðar einhvern lágmarks tíma, getur Húsleigunefnd sveitarstjórnar leigt út íbúðina; og beri alla ábyrgð á leigjandanum gagnvart leigufélaginu.
    2 Það gefur augaleið, að íbúð, sem tekin er í notkun á árunum 1980-90, er skipulega öðruvísi en íbúð, sem tekin er í notkun 2020-24. Þess vegna er ekki eðlilegt, að leiguverð á fermetra og lykilgjald, sé það sama á þessum tveimur íbúðum. Taka þarf tillit til byggingarvísitölu og lánakjara, þegar útleiga íbúðarinna hefst og einnig, að lánin greiðist upp á 30 árum.
    3 Ef lykilgjald er 3ja mánaða húsleiga, þá er lykilgjaldið mismunandi eftir aldri íbúðarinnar.
    4 Koma verður í veg fyrir, að leigufélög (eða húseigendur almennt) geti leikið þann leik, að segja leigusamningi upp eftir rúmt ár, og síðan gefa leigjanda kost á því, að ganga að nýjum samningum með hækkaða húsleigu. Auk þess væri rétt og eðlilegt, að leigusamningi sé rift, ef húasaleiguskuld safnas upp eða ef fjölskylda leigutaka er staðin að því að valda skemmdum á húseigninni eða standa fyrir ólöglegu athæfi í leiguíbúðinni (t.d. hass-sala eða önnur hegningarlagabrot). En ef leigutaki stendur við alla skilmála og greiðir reglulega húsleigu, þá á ekkert að vera til þess að segja leigutaka upp leigunni. Hins vegar verður að líta á þann möguleika, að viðkomandi leigutaki sé álitinn af öllum almenningi, ekki í húsum hæfur (hávaði um nætur og annað ónæði og/eða áfenissýki) og leigusala þar með gefið tækifæri á að segja leigusamningi upp.
    5 Áður á árum voru ekki fylgihlutir algengir í leiguíbúðum. Nú er aftur á móti algengt, að ísskápur, frystikista (-skápur) og kannski uppþvottavél og þvottavél (eða aðgangur að slíkri vél), sé með í leigusamningnum. Þess vegna er augljóst, að viðhald og endurnýjun þessara fylgihluta skal vera leigusalans.
    6 Strax og leigusali hefur móttekið uppsögn frá leigjanda, skal hann og leigutaki fara yfir íbúðina og finna út hvar þarf að betrumbæta vegna mistaka leigjanda. Aftur á móti verður að taka tillit til eðlegs slits vegna langrar búsetu leigutaka.
    7 Trygging leigusala fyrir greiðslu á viðhaldi leiguíbúðar, skal vera lykilgjaldið. Það á einungis að vera, til að greiða fyrir viðhald íbúðarinnar. Það þýðir m.ö.o. að leigutaki verði að greiða húsleigu í þá þrjá mánuði, sem uppsagnarfresturinn er.
    8 Leigusala skal skylt að greiða 1% af húsaleigu í „viðhaldssjóð“, sem virkar þannig að eftir 100 mánuði eða 8 ár og 3 mánuði, á leigutaki rétt á að fá íbúðina málaða á kostnað leigusala (viðhaldssjóðs). Ef leigtaki segir upp leigusamningi fyrir þann tíma, leggst andvirði „viðhaldssjóðs“ við lykilgjaldið og verði notað til greiðslu viðhalds íbúðarinnar við fráflutning. Mismunur, ef einhver er, greiðist af leigutaka.
    9 Leigutaka skal vera skylt að taka heimilistryggingu hjá einhverju Tryggingarfélagi.
    Þessi hugleiðing mín er samin með hliðsjón af dönskum leigusamningi mínum, sem ég hef lifað með í hálfa öld!
    Reynum að sækja fyrirmynd til frændþjóða okar á Norðurlöndum; og koma húsnæðisbraskinu til lífs!
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Hlutdeildarlán gagnast ekki fólki sem er stöðugt haldið á "svörtum listum" á borð við vanskilaskrá og kröfuvöktun og getur því ekki einu sinni fengið grunnlán sem er skilyrði hlutdeildarlána, fyrir litlar sem engar sakir eins og bara það að hér á landi varð bankahrun fyrir 17 árum og í kjölfarið réðust innheimtumenn í stórfelldar aðfarari gegn tugþúsundum heimila sem hafa mörg aldrei jafnað sig eftir það. Bankahrunið tilheyrir alls ekki fortíðinn hjá þessu fólki heldur litar enn þann dag í dag veruleika þeirra dökkum litum. Það er löngu kominn tími til að stjórnvöld veiti saklausu fórnarlömbunum uppreist æru og særi út fortíðardraugana.
    https://samradapi.island.is/api/Documents/141e9b06-9678-f011-9bce-005056bcce7e
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár