Eftir að ráða í á annað hundrað stöðugilda í skólum Reykjavíkur

Í Reykja­vík eru 39 grunn­stöðu­gildi í leik­skólum, 46,9 stöðu­gildi í grunn­skólum og 79 stöðu­gildi í frí­stunda­heim­ilum og sér­tækum félags­mið­stöðvum enn laus. Staða ráðn­inga er þó betri en í fyrra.

Eftir að ráða í á annað hundrað stöðugilda í skólum Reykjavíkur
Börn í leik­skóla Enn á eftir að manna tugi af stöðum í leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Samkvæmt svörum við fyr­ir­spurn sem skóla- og frí­stunda­svið Reykja­víkur sendi á stjórn­endur leik­skóla, grunn­skóla og frí­stunda­mið­stöðva um stöðu í starfs­manna­málum á eftir að ráða í á vel á annað hund­rað stöðu­gildi.

Skóla- og frí­stunda­svið sendi skóla- og frí­stunda­ráði Reykja­vík­ur­borgar minn­is­blað þess efnis 4. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Svör bár­ust frá öllum stjórn­endum en sam­kvæmt þeim er búið er að ráða í um 97,3% grunn­stöðu­gilda í leik­skólum, 98,1% í grunn­skólum og um 75,3% í frí­stunda­heim­ilum/sér­tækum félags­mið­stöðvum.

„Eftir á að ráða í 39 grunn­stöðu­gildi í leik­skólum, 46,9 stöðu­gildi í grunn­skólum og 79 stöðu­gildi í frí­stunda­heim­ilum og sér­tækum félags­mið­stöðvum,“ segir í svar­inu. „Hafa ber í huga að stjórn­endur fá á næst­unni í hendur upp­færðar upp­lýs­ingar um heild­ar­stöðu­gilda­fjölda sem þeir mega ráða sam­kvæmt reikni­lík­önum með til­liti til sam­setn­ingar barna­hóps­ins á hverjum stað. Á þetta sér­stak­lega við stöðu­gildi vegna úthlut­aðrar sér­kennslu. Þessar tölur eru því birtar með fyr­ir­vara um breyt­ingar.“

Betri …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár