Áslaug Arna enn á þingfararkaupi í námsleyfi

Alþingi verður sett á morgun. Ef vara­maður Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur tekur sæti eins og boðað var mun hún hafa fengið yfir 3,1 milljón króna greidda í þing­far­ar­kaup á meðan náms­leyfi hennar í New York stendur.

Áslaug Arna enn á þingfararkaupi í námsleyfi
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks til­kynnti 2. maí að hún mundi fara í nám við Columbia-háskóla í New York. Mynd: Instagram

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur fengið um 3,1 milljón króna í þing­far­ar­kaup frá því Alþingi var slitið 14. júlí. Allan þann tíma - og raunar nokkuð lengur - hefur hún verið í náms­leyfi í Banda­ríkj­unum.

Alþingi verður sett á morgun að lok­inni guðs­þjón­ustu í Dóm­kirkj­unni. Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, setur þing en eftir hlé verður hlutað um sæti þing­manna og fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2026 útbýtt. Umræða um frum­varpið hefst á fimmtu­dag en á mið­viku­dag flytur Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra stefnu­ræðu.

Áslaug Arna til­kynnti í maí að hún mundi taka sér leyfi í níu mán­uði til að leggja stund á MPA nám við Columbia háskóla. Í febr­úar beið hún lægri hlut í for­manns­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegn Guðrúnu Haf­steins­dóttur.

Sigurður Örn Hilm­ars­son lög­maður mun taka sæti Áslaugar Örnu á meðan sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, en útskrift hennar úr nám­inu er í maí 2026. Samkvæmt starfs­á­ætlun verður Alþingi frestað aftur 12. júní þannig …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það eru engir jafn hneykslaðir og hún og hennar félagar á peninga austri ríkisins og það eru sennilega hvergi jafn margir á eftirlaunum í æfiráðningum eins og hjá þessum gamla eiganda Íslands, sem og skipuðum auðlinda"eigendum,, þjóðarinnar, sveiattan.
    6
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Spilling
    4
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Já, hún þarf peninga til að fljúga til New York sem sagt ferðapeninga. Ekki vissi ég að New york væri hluti af kjördæmi hennar. Ef þetta er allt rétt sem kemur fram í fréttinni þá spyr ég er þetta ekki spilling eða hvað? Er þetta kannski bara eitt dæmi um spillinguna á Íslandi? Ég efast um að þetta myndi líðast á öðrum norðulöndum.
    7
  • Hilmar Bjarnason skrifaði
    Það er dýrt að búa í New York. Hún þarf á peningunum að halda.
    2
    • Olafur Kristjansson skrifaði
      Það er fallegt að styðja þá sem berjast í bökkum.
      3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár