„Mér eru gerð upp viðhorf og ummæli“

Snorri Másson, sem hefur sætt harðri gagn­rýni síð­ustu daga, segir að sér hafi verið gerð upp við­horf og lagt hafi verið út af ein­hverju sem hann hafi aldrei sagt. Hann hafi áhyggjur af þöggun í sam­fé­lag­inu.

„Mér eru gerð upp viðhorf og ummæli“

„Eftir umtalað sjón­varps­við­tal á mánu­dag­inn eru að baki lík­lega und­ar­leg­ustu nokkrir dagar á mínum stutta stjórn­mála­ferli. Van­stillt við­brögð á net­inu hafa sann­ar­lega tekið út yfir allan þjófa­bálk,“ skrifar Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, á Facebook síð­degis. 

Talsvert hefur borið á umræðu um þing­mann­inn og fram­komu hans eftir að hann mætti Þor­björgu Þor­valds­dóttur, verk­efna­stýru hjá Sam­tök­unum '78, í Kast­ljósi á RÚV á mánu­dag. Til umræðu var bakslag í mál­efnum hinsegin fólks. 

Snorri hefur sætt harðri gagn­rýni fyrir ummæli sín í þætt­inum og var greint frá því í fjöl­miðlum í dag að sér­sveitin hefði haft eft­ir­lit með heim­ili hans í kjöl­far þess að heim­il­is­fang hans var birt á sam­fé­lags­miðlum.

Hefur áhyggjur af þöggun

Snorri segir að það veki athygli hans að jafnan sé lagt út af ein­hverju sem hann hafi aldrei sagt. „Mér eru gerð upp við­horf og ummæli. Sú stað­reynd hefur þó ekki dregið úr stór­yrð­unum, sem sumum er beint að per­sónu minni og jafn­vel fjöl­skyldu. [...] Þessi við­brögð, bæði heilaga vand­læt­ingin en einnig þakk­læt­is­bylgjan, gera því ekki annað en stað­festa áhyggjur mínar í við­tal­inu af afar við­sjár­verðri þöggun sem hefur grafið um sig í okkar sam­fé­lagi.“

Einn hluta gagn­rýn­innar seg­ist Snorri þó taka til sín, þann sem snúi að frammíköllum hans. „Þetta er baga­legur ósiður í sjón­varps­sal, einn af þeim sem ég lofa hér með form­lega að losa mig alfarið við fyrir þrí­tugt.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • BRE
    Bjarni Rúnar Einarsson skrifaði
    Fólk með skítlegar skoðanir vælir jafnan undan "þöggun" þegar skítlegu skoðanirnar fá réttmæta gagnrýni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár