69% ná að safna sparifé

Minna en einn af hverjum tíu lands­mönnum nær ekki endum saman á meðan nær sjö af hverjum tíu ná að safna sparifé. Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup en sam­kvæmt honum hefur fjár­hagur heim­il­anna sjaldan verið betri frá upp­hafi mæl­inga.

69% ná að safna sparifé

Fjár­hagur heim­il­anna í land­inu hefur sjaldan verið betri síðan mæl­ingar hófust, sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Hann vænk­að­ist jafnt og þétt eftir hrun og var bestur á tímum sam­komu­tak­mark­ana vegna heims­far­ald­urs. Eftir það fjölg­aði aftur þeim sem náðu ekki endum saman en nú hefur þeim fjölgað á ný sem ná að safna sparifé. Þannig segja 52% aðspurðra að þeir geti „safnað svolitlu sparifé“ en 17% að þeir geti „safnað tals­verðu sparifé“. Þá segj­ast 6% nota sparifé til að ná endum saman og 4% að þeir safni skuldum.

Mynd/Gallup

Konur eru lík­legri en karlar til að safna skuldum eða þurfa að ganga á sparifé sitt til að ná endum saman, á meðan karlar eru lík­legri en konur til að rétt ná endum saman. Fólk milli þrí­tugs og sex­tugs á erf­ið­ast með að ná endum saman.

Sá helm­ingur þjóð­ar­innar sem hefur lægri fjöl­skyldu­tekjur er, eins og við er að búast, lík­legri til að safna skuldum eða ná endum saman með naum­indum en sá helm­ingur sem hefur hærri fjöl­skyldu­tekjur. Þá eru þeir sem eru með hærri fjöl­skyldu­tekjur lík­legri til að ná að safna sparifé. 

Mynd/Gallup

Hlutfall þeirra sem ná ekki endum saman er hæst meðal þeirra sem kysu Flokk fólks­ins ef kosið yrði til Alþingis í dag en hlut­fall þeirra sem ná að safna sparifé er hæst meðal þeirra sem kysu Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Fylgni er milli þess að ná illa endum saman og að búa í leigu­hús­næði.

Um 34% segja ein­hvern í fjöl­skyldu sinni búa við fátækt en fjöl­skylda var skil­greind bæði sem allra nán­asta fjöl­skylda og nánir ætt­ingjar eins og frændur og frænkur. Ríflega 36% til við­bótar sögðu ein­hvern í fjöl­skyldu sinni ein­hvern tíma hafa búið við fátækt. Þetta er svipað hlut­fall og í síð­ustu mæl­ingum.

Mynd/Gallup

Hlutfall þeirra sem segja fjöl­skyldu­með­lim búa við fátækt er hæst meðal þeirra sem kysu Flokk fólks­ins ef kosið yrði til Alþingis í dag. Hlutfall þeirra sem segja fjöl­skyldu­með­lim aldrei hafa búið við fátækt er hæst meðal þeirra sem kysu Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Þau sem búa í eigin hús­næði eru ólík­legri til að segja ein­hvern í fjöl­skyldu sinni búa við fátækt en þau sem búa í leigu­hús­næði eða í for­eldra­húsum.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár