Þriðji aðstoðarmaður Heiðu Bjargar tekur til starfa

Róbert Marshall hefur í dag störf sem aðstoð­ar­maður Heiðu Bjargar Hilm­is­dóttur borg­ar­stjóra. Hann er þriðji til að gegna því starfi síðan hún tók við emb­ætti borg­ar­stjóra í lok febr­úar.

Þriðji aðstoðarmaður Heiðu Bjargar tekur til starfa

Róbert Marshall hefur tekið við stöðu aðstoð­ar­manns Heiðu Bjargar Hilm­is­dóttur borg­ar­stjóra. Róbert er fyrr­ver­andi alþing­is­maður og hefur að baki fjöl­breyttan feril í stjórn­málum, fjöl­miðlum og fjalla­leið­sögn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Ág­úst Ólaf­ur Ág­ústs­son hætt­i á dög­unum sem að­stoð­ar­mað­ur borg­ar­stjóra, eft­ir inn­an við þriggja mán­aða starf, og tók við starfi að­stoð­ar­manns menna- og barna­mála­ráð­herra. For­veri hans, Katrín M. Guð­jóns­dóttir, hætti eft­ir rúm­lega tveggja mán­aða starf fyr­ir borg­ar­stjóra. Róbert er því þriðji aðstoð­ar­maður Heiðu Bjargar sem tók við emb­ætti borg­ar­stjóra í lok febr­úar.

Róbert var upp­lýs­inga­full­trúi rikis­stjórn­ar­innar meg­in­hluta áranna 2020 og 2021 á meðan Covid 19 gekk yfir. Hann starf­aði við fjöl­miðla um ára­bil og var aðstoð­ar­maður sam­göngu­ráð­herra áður en hann sett­ist á þing árið 2009.

Róbert er fyrr­ver­andi for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands og fyrr­ver­andi for­stöðu­maður frétta­sviðs 365. Hann stund­aði fisk­vinnslu, neta­gerð og sjó­mennsku í Vest­manna­eyjum og er stúd­ent frá fram­halds­skól­anum þar. 

Á þingi gegndi hann meðal ann­ars þing­flokks­for­mennsku, for­mennsku í alls­herj­ar­nefnd, for­mennsku í Íslands­deild þings Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu og sat í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, Þing­valla­nefnd og Norð­ur­landa­ráði.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár