Ágúst Ólafur hættur hjá borgarstjóra

Ág­úst Ólaf­ur Ág­ústs­son er hættur sem aðstoð­ar­maður borg­ar­stjóra, eftir innan við þriggja mán­aða starf, og tekur við starfi aðstoð­ar­manns menna- og barna­mála­ráð­herra. Forveri hans hætti eftir rúm­lega tveggja mán­aða starf fyrir borg­ar­stjóra.

Ágúst Ólafur hættur hjá borgarstjóra
Ágúst Ólafur fer yfir í mennta- og barna­mála­ráðu­neytið eftir innan við þrjá mán­uði hjá borg­ar­stjóra. Mynd: Reykjavíkurborg

„Þegar haft var sam­band við mig og óskað eftir kröftum mínum í ráðu­neytið þá hafði ég nýlega ráðið mig í núver­andi starf. Ég fann þá að barna- og mennta­málin á lands­vísu tog­uðu enda hef ég lengi brunnið fyrir þeim málum,“ segir Ágúst Ólafur Ágústs­son sem er hættur sem aðstoð­ar­maður Heiðu Bjargar Hilm­is­dóttur borg­ar­stjóra. Tilkynnt var um ráðn­ingu hans sem aðstoð­ar­manns Heiðu á vef Reykja­vík­ur­borgar þann 10. júní síð­ast­lið­inn.

Ágúst Ólafur tók við starf­inu af Katrínu M. Guð­jóns­dóttur sem baðst lausnar frá starfi eftir að hún hafði sinnt því í rúma tvo mán­uði.

Ágúst Ólafur segir á Facebook-síðu sinni að það sé sam­komu­lag milli borg­ar­stjóra og mennta- og barna­mála­ráð­herra um að hann muni taka við nýju starfi í ráðu­neyt­inu þar sem hann verður aðstoð­ar­maður Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar.

„Sem þing­maður lagði ég fram til­lögu um lög­fest­ingu Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem var sam­þykkt. Fyrir þá bar­áttu fékk ég sér­staka við­ur­kenn­ingu Barna­heilla á 20 ára afmæl­is­degi Barna­sátt­mál­ans fyrir „sér­stakt fram­lag í þágu barna og mann­rétt­inda þeirra“, sem mér þykir mjög vænt um. En ég flutti jafn­framt fjöl­mörg önnur mál sem snúa að mál­efnum barna og stuðn­ingi við barna­fjöl­skyldur en hef einnig verið við­loð­andi kennslu und­an­farin 14 ár,“ skrifar Ágúst Ólafur þar sem hann þakkar sömu­leiðis fyrir „stuttan en góðan tíma í Ráð­hús­inu“. 

Ágúst hefur störf 1. sept­em­ber og mun starfa ásamt Guð­björgu Ingunni Magn­ús­dóttur, sem einnig er aðstoð­ar­maður mennta- og barna­mála­ráð­herra.

Lögfræðingur, hagfræðingur og stjórnsýslufræðingur

Ágúst Ólafur er fyrr­ver­andi alþing­is­maður og efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra. Þá sat hann í banka­ráði Seðla­banka Íslands í fjögur ár og gegndi meðal ann­ars for­mennsku í við­skipta­nefnd Alþingis, Evr­ópu­nefnd for­sæt­is­ráð­herra og í fram­kvæmda­sjóði aldr­aða.

Hann vann sem sér­fræð­ingur á aðal­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York og hefur að und­an­förnu stundað dokt­ors­nám í opin­berri stjórn­sýslu. Samhliða hefur hann kennt við Háskóla Íslands ásamt því að sinna ráð­gjaf­ar­störfum meðal ann­ars fyrir Sjúkra­liða­fé­lag Íslands, Rann­sókn­ar­setur skap­andi greina og Ljósið.

Ágúst er mennt­aður lög­fræð­ingur, hag­fræð­ingur og stjórn­sýslu­fræð­ingur og á sæti í stjórn Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands og Evr­ópu­hreyf­ing­ar­innar.

Ágúst Ólafur fór í leyfi frá þing­­­störfum í des­em­ber 2018 eftir að hafa verið áminntur af trún­­­að­­­ar­­­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar vegna kyn­­­ferð­is­­­legrar áreitni gegn blaða­­­manni Kjarn­ans. Ágúst Ólafur sótti sér svo aðstoðar vegna áfeng­is­vanda og til­kynnti um það opin­ber­lega. Þá var umdeilt þegar hann sneri aftur á Alþingi og var það gagn­rýnt af Samtökum ungra jafn­að­ar­manna. Hann datt út af þingi árið 2021. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár