Draumurinn um hinsegin kvikmyndahátíð rætist

Kvik­myndir frá öllum heims­hornum verða sýndar á Icelandic Queer Film Festival í Bíó Paradís, þar á meðal teikni­mynd um les­bíska geimprinsessu og sígild heim­ild­ar­mynd um vogue-sen­una í New York.

Draumurinn um hinsegin kvikmyndahátíð rætist
Icelandic Queer Film Festival Sigríður Ásgeirs­dóttir, Charlotta Rós Sig­munds­dóttir og Óli Hjörtur Ólafsson standa að hátíð­inni.

Icelandic Queer Film Festival verður haldin í fyrsta sinn dag­ana 4. til 7. sept­em­ber í Bíó Paradís.

Þrjátíu ár eru síðan fyrsta hinsegin kvik­mynda­há­tíðin var haldin á Íslandi, Hinsegin bíó­dagar, hug­ar­fóstur Krist­ínar Ómars­dóttur og Hrafn­hildar Gunn­ars­dóttur. „Við vitum að við erum ekki að finna upp hjólið því hún braut blað í íslenskri menn­ing­ar­sögu. Heimili hátíð­ar­innar var þá í gamla Regn­bog­anum og talar hún því við nýju hátíð­ina bæði varð­andi stað­setn­ingu og hug­sjón,“ segir Óli Hjörtur Ólafsson, rekst­ar­stjóri Bíó Paradís.

„Þetta var eig­in­lega smá heppni eða kannski meira að vera á réttum stað og á réttu stund,“ bætir hann við um til­urð hátíð­ar­innar. „Ég er búinn að vera með þann draum í mörg ár að Ísland fái almenni­lega kvik­mynda­há­tíð sem að ein­blínir ein­ungis á hinsegin sögur og hinsegin kvik­mynda­gerð. Það eru þannig hátíðir alls staðar í Banda­ríkj­unum, Suður-Ameríku, Asíu og líka á Norð­ur­lönd­unum. Af hverju ekki á Íslandi?“

Óli Hjörtur segir að vegna starfs síns sem rekstr­ar­stjóri Bíó Paradís hafi hann fengið tæki­færið til að láta þennan lang­þráða draum ræt­ast. „Ég sem sam­kyn­hneigður maður og algjör „cinephile“ hefði elskað að getað fengið að upp­lifa þannig hátíð þegar ég var að koma út sem 18 ára,“ segir hann. „Eftir nokkra mán­aða vinnu þar hafði Sigga Ásgeirs­dóttir vin­kona mín sam­band við mig varð­andi mynd sem að hana lang­aði að sýna í bíó­inu og ég minnt­ist á þennan draum við hana. Við byrj­uðum að pæla í þessu og sækja um styrki. Það leið ekki langt þangað til að önnur vin­kona mín Charlotta Rós heyrði af þessu og við buðum henni með í að taka þátt í þessu ævin­týri með okkur.“

„Það er mik­ill kraftur fólg­inn í því að upp­lifa saman í bíó­sal“

Aðspurður um hvaða áherslur hafi verið við val á kvik­myndum á hátíð­ina segir Óli Hjörtur að þau hafi langað að sýna eitt­hvað nýtt. „Eitthvað ferskt og skemmti­legt sem að end­ur­speglar hinseg­in­leik­ann á nútíma­legan hátt. Fram­leiðsla á hinsegin kvik­mynda­efni hefur aldrei verið meiri og fjöl­breytt­ari, en því miður er fátt af því efni sem nær í almennar sýn­ingar og algeng­ast er að fólk nálgist efni á net­inu og horfi eitt heima hjá sér eða í litlum hópi. Það er mik­ill kraftur fólg­inn í því að upp­lifa saman í bíó­sal og við viljum að bíó­húsið sé sam­komu­staður hug­mynda og pæl­inga. Það er svo gaman að ræða það sem man var að sjá. Hvað var gott og hvað ekki. Oft mest gaman að ræða það sem man fíl­aði ekki.“

Gróska í hinsegin íslenskri kvikmyndagerð

Óli Hjörtur seg­ist ótt­ast bakslag í hinsegin kvik­mynda­gerð í Banda­ríkj­unum vegna stjórn­mála­á­stands­ins þar. „En ég vona inni­lega að fólk sjái skrípa­leik­inn í því og geri áfram sitt og haldi ótrautt áfram. Norð­ur­löndin eru að koma sterk inn, sér­stak­lega Noregur að mínu mati, og ekki má gleyma Svíþjóð sem að ruddi braut­ina með mynd­ina Fucking Åmål sem verður einmitt sýnd á hátíð­inni.

Á Íslandi finn fyrir grósku í hinsegin kvik­mynda­gerð og þá sér­stak­lega með mynd­ina Geltu sem að vann Eddu­verð­launin sem besta stutt­myndin í ár. Einnig má ekki gleyma Örnu Magneu Danks sem í ár varð fyrsta íslenska trans­kona til að vera til­nefnd sem besta leik­konan á Eddinu. Satt best að segja hefði ég elskað það ef að hún hefði farið heim með Eddunna. Þannig að þetta fer batn­andi klár­lega.“

Paris Is BurningHeim­ilda­myndin sígilda um vogue-dans menn­ing­una í New York borg verður sýnd á sér­stakri partý­sýn­ingu á hátíð­inni.

Mynd­irnar á hátíð­inni eru meðal ann­ars frá Kína, Frakk­landi, Brasílíu, Fil­ips­eyjum, Írlandi, Banda­ríkj­unum, Íslandi, Ástralíu, Danmörku og Svíþjóð og ættu öll að finna eitt­hvað við sitt hæfi, að mati Óla Hjartar.

Sjálfur seg­ist hann sér­stak­lega mæla með mynd­inni Asog frá Fil­ipps­eyjum. „Hún er eitt­hvað svo fyndin og skemmti­leg og svo fal­leg,“ segir hann. „Er búin að sjá hana nokkrum sinnum og ég er gjör­sam­lega hrif­inn yfir þess­ari mynd. Teikni­myndin Lesbian Space Princess er einnig ótrú­lega skemmti­leg og síðan verður upp­á­halds heim­ilda­myndin mín Paris Is Burning sýnd og það verður sér­stök partý­sýn­ing í kringum hana þar sem hún var frum­sýnd á Íslandi á Hinsegin bíó­dögum fyrir 30 árum.“

Reykja­vík­ur­borg og Kvik­mynda­mið­stöð styðja hátíð­ina en Óli Hjörtur segir skipu­leggj­endur sér­stak­lega vera þakk­láta Barna­menn­ing­ar­sjóði sem með styrk sínum gerði það að verkum að sér­stök ung­menna­dag­skrá verður í boði þar sem hinsegin ung­linga­myndir verða sýndar án end­ur­gjalds.

Miðasala á hátíð­ina er hafin á Tix.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár