Óttast nýja stjórnmálakrísu í Frakklandi

Frakkar ótt­ast nýja stjórn­málakrísu þar sem minni­hluta­stjórn François Bayrou virð­ist standa frammi fyrir því að vera felld í atkvæða­greiðslu um van­traust sem fram fer í sept­em­ber.

Óttast nýja stjórnmálakrísu í Frakklandi
François Bayrou, for­sæt­is­ráð­herra Frakka, ræðir við blaða­menn Mynd: AFP

François Bayrou, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands, sem lengi hefur átt í vök að verj­ast, til­kynnti óvænt í gær að hann hefði beðið Emmanuel Macron for­seta um að boða til auka­fundar þings­ins 8. sept­em­ber. Bayrou þarf stuðn­ing til að knýja fram aðhalds­að­gerðir sem eiga að stemma stigu við skulda­söfnun rík­is­ins en helstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, frá hægri til vinstri, hafa lýst því yfir að þeir muni ekki styðja áform hans.

Yfir­lýs­ingin barst á sama tíma og kröfur um alls­herj­ar­verk­fall 10. sept­em­ber til mót­mæla nið­ur­skurði juk­ust dag frá degi.

Í dag hvatti Bayrou stjórn­mála­menn til ábyrgðar og minnti á að enn væru 13 dagar til stefnu: „Þá verður að svara því hvort menn vilja standa með ábyrgð eða óreiðu,“ sagði hann. „Er hér ekki um neyð­ar­á­stand að ræða - neyð til að ná jafn­vægi í rík­is­fjár­málum, draga úr skulda­söfnun og efla fram­leiðslu?“ spurði for­sæt­is­ráð­herr­ann. „Þetta er kjarni máls­ins.“

Le Pen og Mélenchon krefjast harðra aðgerða

Marine Le Pen, leið­togi frönsku Þjóð­fylk­ing­ar­innar, sem hingað til hefur setið hjá í van­trausts­at­kvæða­greiðslum og þannig gert Bayrou kleift að halda velli, krefst nú að þingið verði leyst upp og boðað til nýrra kosn­inga.

Jean-Luc Mélenchon, leið­togi óháðra vinstri­manna, sem áður hefur reynt árang­urs­laust að fella Bayrou, gekk enn lengra. Hann sagði Macron þurfa að segja af sér ef Bayrou yrði felldur nú. „Macron er sjálfur óreiðan,“ sagði Mélenchon og til­kynnti að hann hygð­ist leggja fram van­traust­s­til­lögu gegn for­set­anum:  „Hann verður að fara.“

Spennustigið í frönskum stjórn­málum magn­ast eftir því sem stytt­ist í for­seta­kosn­ing­arnar árið 2027, þegar annað kjör­tíma­bil Macrons rennur sitt skeið. For­set­inn hefur ítrekað verið kraf­inn um afsögn frá því hann leysti þingið upp í fyrra eftir fylg­is­auka ystu hægri­flokk­anna í Evr­ópu­kosn­ingum. Sú ákvörðun sökkti land­inu í lang­vinna póli­tíska krísu. Macron hefur þó stað­fest að hann ætli að sitja út kjör­tíma­bilið og vill forð­ast að boða til ann­arra skyndi­kos­inga. Ef Bayrou verður felldur þarf for­set­inn hins vegar að skipa sinn sjö­unda for­sæt­is­ráð­herra og það myndi varpa þungum skugga yfir síð­ustu tvö ár hans í emb­ætti.

Fjárlagavandi og óvinsælar aðgerðir

Bayrou tók við af Michel Barnier í des­em­ber, en hann var felldur eftir aðeins þrjá mán­uði þegar franska Þjóð­fylk­ingin sam­ein­að­ist vinstri­blokk­inni gegn rík­is­stjórn­inni í deilu um fjár­lög. Frakk­land hefur árum saman eytt um efni fram og er nú undir þrýst­ingi Evr­ópu­sam­bands­ins um að draga úr halla og skuldum.

Bayrou leggur til að sparað verði um 44 millj­arða evra (um 7.000 millj­arða króna). Meðal þess sem hann leggur til í því skyni er fækkun frí­daga og fryst­ing á rík­is­út­gjöldum. Til­lög­urnar, sem hann kynnti í júlí sem hluta af fjár­laga­frum­varpi fyrir 2026, hafa þó mætt mik­illi and­stöðu í sam­fé­lag­inu.

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hvetja til þess að fundin verði far­sæl lausn. Eric Lombard efna­hags­ráð­herra hét því að „berj­ast“ fyrir því að rík­is­stjórnin lifði af atkvæða­greiðsl­una 8. sept­em­ber. „Ábyrgð okkar er að ná sam­komu­lagi – landið þarf fjár­lög,“ sagði hann.

Bruno Reta­il­leau inn­an­rík­is­ráð­herra varar við því að van­traust gæti sett af stað fjár­málakreppu: „Það væri stór­kost­lega ábyrgð­ar­laust að steypa land­inu í fjár­mála­hrun sem myndi fyrst og fremst bitna á þeim sem minnst mega sín,“ sagði hann.

Markaðir bregðast við

Óvissan end­ur­spegl­að­ist skýrt á hluta­bréfa­mark­aði í París. CAC 40 vísi­talan féll um tvö pró­sent í morgun, meira en á öðrum helstu mörk­uðum Evrópu. Hluta­bréf franskra banka hríð­féllu og ávöxt­un­ar­krafa á tíu ára rík­is­skulda­bréf hækk­aði sem skýr vís­bend­ing um minnk­andi traust fjár­festa til franskra skulda. Skuldir Frakk­lands nema nú 114 pró­sentum af lands­fram­leiðslu sem sér­fræð­ingar telja ógna fjár­mála­stöð­ug­leika lands­ins.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ég var fljót að læra að stafa og lesa þegar ég var krakki í skóla þrátt fyrir lélega sjón og heyrn hefði komist langt í lífinu ef ég hefði fæðst eðlileg og heilbrigð ef aðstæður hefðu boðið upp á það enn hvað um það! Það er ekki allt gefið hvað tilveran býður upp á hvað blessað lífið varðar
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár