Útgáfa Heimildarinnar skilaði jákvæðri rekstrarniðurstöðu

Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið hagn­að­ist um 10,6 millj­ónir króna í fyrra, en blikur eru á lofti í rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Heim­ildin leggur héðan af meiri áherslu á umfjall­anir á vefnum og minni á prentun hjá sam­keppn­is­að­ila.

Útgáfa Heimildarinnar skilaði jákvæðri rekstrarniðurstöðu
Forsíða Heim­ild­ar­innar Prent­blað Heim­ild­ar­innar er að með­al­tali lesið af 12,3% sam­kvæmt óháðri könnun Gallups. Mynd: Golli

Rekstur Sam­ein­aða útgáfu­fé­lags­ins, sem gefur út Heim­ild­ina, skil­aði 10,6 millj­óna króna hagn­aði á árinu 2024. Þegar tekið er til­lit til skatta og fjár­magnsliða var hagn­að­ur­inn 5,8 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins.

Rekstr­ar­tölur eru lítið breyttar frá árinu áður. Hagnaður er minni en 2023, þegar afkoman var 17,7 millj­ónir króna fyrir fjár­magnsliði og skatta, eða 11 millj­ónir að teknu til­liti til þeirra.

Með­al­fjöldi starfs­manna var 24,4, en var 25 árið áður, og voru rekstr­ar­tekjur 548 millj­ónir króna, miðað við 532 millj­ónir króna árið áður. Launa­kostn­aður jókst úr 330 millj­ónum króna í 337 millj­ónir króna.

Heim­ildin varð til við sam­runa Stund­ar­innar og Kjarnans í árs­byrjun 2023. Afkoman er í sam­ræmi við yfir­lýs­ingar aðstand­enda félags­ins fyrir sam­runa í árs­lok 2022: „Eitt af grunn­mark­miðum nýs fjöl­mið­ils er sjálf­bær rekstur til lengri tíma sem stendur undir sjálf­stæði rit­stjórnar. Rekst­ur­inn á þó í sam­keppni við stærri fjöl­miðla sem hafa fengið …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár