„Alvarlegt gáleysi sem olli þjáningu og dauða sextán kúa“

Formaður Dýra­vernd­ar­sam­bands­ins, Linda Karen Gunn­ars­dóttir, segir að „alvar­legt gáleysi“ hafi valdið því að sextán kýr hafi drep­ist úr gasmengun. Þóra Jóhanna Jón­as­dóttir yfir­dýra­læknir Mat­væla­stofn­unar segir málið til skoð­unar. Ekki bár­ust ábend­ingar um refsi­verða hátt­semi.

„Alvarlegt gáleysi sem olli þjáningu og dauða sextán kúa“
Linda Karen Gunn­ars­dóttir Segir að um alvar­legt gáleysi hafi verið að ræða þegar sextán kýr drápust úr gasmengun í lok júlí.

Sextán mjólk­ur­kýr drápust vegna gasmeng­unar á bænum Ásgarði í Reyk­holts­dal í lok júlí. „Þetta er vissu­lega hörmu­legt mál,“ segir Linda Karen Gunn­ars­dóttir, for­maður Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands. 

Kýrnar sextán drápust vegna brenni­steins­vetn­is­meng­unar sem mynd­að­ist þegar hrært var upp í haug­hús­inu undir fjós­inu. Þær höfðu verið úti á túni en kom­ist aftur inn í fjósið þar sem mjalt­ar­þjón er að finna. Fimmtán kýr lét­ust sama dag en sú sext­ánda lést dag­inn eftir atvikið. Skessu­horn greindi frá atvik­inu í síð­ustu viku.

„Þetta hefði aldrei átt að ger­ast. Þarna hefði átt að gæta þess að engin dýr kæmust inn,“ segir Linda. Hún segir að eflaust hafi verið um slys að ræða. „Engu að síður er um að ræða alvar­legt gáleysi sem olli þján­ingu og dauða sextán kúa. Mat­væla­stofnun þarf að skoða þetta mál.“

Ekki ábendingar um refsiverða háttsemi

Þóra Jóhanna Jón­as­dóttir yfir­dýra­læknir Mat­væla­stofn­unar segir að málið hafi komið upp á borð …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Því meiri fréttaflutningur af aðbúnaði dýra, þeim mun betra. Húsdýr búa almennt ekki við fullnægjandi aðstæður, jafnvel ekki á bestu bæjum, og hvað þá þar sem staðan er verri. Svo sting ég upp á nýju hattheiti, verksmiðjudýr, til að aðskilja þau frá öðrum húsdýrum. Líf verksmiðjudýranna er að jafnaði miklu verra en þeirra sem búa á hefðbundnum sveitabæjum (sem eru reyndar óðum að hverfa). Og verksmiðjurnar varðar í bak og fyrir, svo enginn geti skyggnst inn.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár