Frosti kaupir Nútímann, Sykur og fleiri vefi

Facebook-síðan Sykur deilir nú fréttum um eld­fim mál­efni til 28 þús­und fylgj­enda sem áður sáu upp­skriftir og stjörnu­spár. Frosti Logason segir Facebook-síð­urnar mik­il­vægar fyrir dreif­ingu efn­is­ins en frá­far­andi eig­andi seg­ist ekki koma nálægt efn­is­tökum.

Frosti kaupir Nútímann, Sykur og fleiri vefi
Frosti Logason Eigandi Brot­kasts kaupir Nútímann sem hann hefur rit­stýrt und­an­farin ár.

Frosti Logason, eig­andi streym­isveit­unnar Brotkast, kaupir vef­mið­il­inn Nútímann en honum hefur hann rit­stýrt und­an­farin ár. Með fylgja Facebook-síð­urnar Sykur, Menn.is og Ske sem hafa þús­undir fylgj­enda en Frosti segir það mik­il­vægt upp á dreif­ingu á efni Nútímans.

FrostAT ehf. hefur átt miðl­ana und­an­farin ár en félagið er í eigu Sigríðar Dagnýjar Sig­ur­björns­dóttir, sem einnig á útgáfu­fé­lagið Birtíng sem gefur út tíma­ritin Gest­gjafann, Hús og híbýli og Vikuna. Þeir miðlar eru þó aðskildir Nútím­anum og hinum síð­unum að hennar sögn.

„Ég kem ekki nálægt neinum efn­is­tökum“

„Frosti Logason hefur tekið við þessum miðlum og er að kaupa vef­ina og er með fullt rit­stjórn­ar­legt frelsi,“ segir Sigríður í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. „Félag mitt á vef­ina og þessa sam­fé­lags­miðla sem stendur. Ég kem ekki nálægt neinum efn­is­tökum og ekki Birtíngur.“

Frosti Logason segir að sam­legð­ar­á­hrif felist í því að hann eign­ist þessa miðla. „Þetta lá í dvala og hún fékk mig til að blása lífi í þetta og það hefur gengið rosa­lega vel,“ segir hann um Nútímann. „Ég lýsti yfir áhuga á að eign­ast þetta og það er í ferli. Ekkert frá­gengið eins og er en sam­eig­in­legt mark­mið okkar að ég kaupi þetta af henni. Ég er að reka Brotkast sam­hliða og þetta er hent­ugt upp á sam­legð­ar­á­hrif að nýta þetta saman. Við höfum fundið ofboðs­lega mik­inn með­byr og ég stefni að því að sam­eina þetta frekar.“

„Menn.is, Sykur, Ske og fleiri síður sem ég get notað til að auka dreif­ingu Nútímans“

Hann segir ekki standa til að end­ur­vekja þá vefi sem hafa verið í dvala í nokkur ár. „Ég er að díla við að fá þessar Facebook-síður upp á dreif­ingu efn­is­ins á Nútím­anum. Inn í þessum díl eru Menn.is, Sykur, Ske og fleiri síður sem ég get notað til að auka dreif­ingu Nútímans.“

Deildi áður léttu efni á Facebook

Nútíminn var áður fjöl­mið­ill sem birti fréttir og létt efni miðað að ungu fólki og var rit­stýrt af Atla Fannari Bjarka­syni. Facebook-síða nútím­ans er með um 23 þús­und fylgj­endur. Menn.is er með 33 þús­und fylgj­endur á Facebook og Ske með um 10 þús­und.

Sykur var áður hluti af Kvenna­blað­inu sem lengi var rit­stýrt af Stein­unni Ólínu Þor­steins­dóttur. Vefsíða Sykurs hefur verið óvirk í tvö ár en Facebook-síða Sykurs er með um 28 þús­und fylgj­endur og deilir nú efni frá Nútím­anum. Áður deildi hún létt­ara efni, til dæmis upp­skriftum og stjörnu­spám.

Nýlegar færslur sem mið­ill­inn hefur birt og deilt eru til dæmis frétt um mál­futn­ing múslima­hat­ar­ans Tommy Robinson í hlað­varpi og grein eftir for­mann Sam­tak­anna 22 sem beita sér gegn við­ur­kenn­ingu trans­fólks innan rétt­inda­bar­áttu sam­kyn­hneigðra.

„Ef ein­hverjum mis­líkar ný efn­is­tök er ekk­ert mál að „unfollowa““

Aðspurður hvernig fólk taki í að sjá eld­fimara efni á Facebook-síðum sínum segir Frosti að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að Sykur hafi áður verið hluti af Kvenna­blað­inu. „Ég held að fólk sé ekki að pæla mikið í því,“ segir hann. „Ef ein­hverjum mis­líkar ný efn­is­tök er ekk­ert mál að „unfollowa“ bara. En við finnum aukn­ingu á öllum Facebook-síðum, mik­inn með­byr og ánægju með lífið sem við erum búnir að kveikja.“

Nútíminn hefur vakið athygli fyrir efn­is­tök sín frá því að Frosti tók við, en Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags­ins úrskurð­aði í mars að Frosti og Nútíminn hefðu framið ámæl­is­vert brot gegn siða­reglum fyrir að hafa ekki leið­rétt umfjöllun sína um mál­efni trans­konu eftir að ábend­ingar frá henni bár­ust.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár