MAST tilkynnt um meinta kattaveiði í Árbæ

Til­kynn­ingum hefur rignt inn til Mat­væla­stofn­unar vegna gruns um að íbúi í Árbæ hafi tekið ketti í hverf­inu ófrjálsri hendi. Tveir við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar segja að meintur ger­andi hafi við­ur­kennt í sam­tali að hann veiði ketti.

MAST tilkynnt um meinta kattaveiði í Árbæ
Felli­búrið Lögreglu, Mat­væla­stofnun og Dýra­þjón­ustu Reykja­víkur hefur verið til­kynnt um til­vist búrs­ins.

Grunur leikur á um að kettir hafi verið veiddir í búr við íbúða­hús í Árbæ. Mat­væla­stofnun, Dýra­þjón­ustu Reykja­víkur og lög­regl­unni hefur verið gert við­vart vegna máls­ins.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar týnd­ist köttur í hverf­inu fyrir um tveimur vikum og leit­aði eig­andi hans ákaft að honum. Eig­and­inn sá felli­búrið við hús í Árbæ og tók af því mynd­irnar sem fylgja með frétt­inni.

Í felli­búr­inu var dós af tún­fiski sem ætla má að hafi átt að lokka kett­ina inn í búrið. Segja tveir við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar að íbúar húss­ins hafi við­ur­kennt í sam­tali við þá að búrið hafi verið notað til að veiða ketti. Þá hafi komið fram í sam­tölum þeirra við nágranna að fleiri kettir hafi horfið í hverf­inu.

Dós af tún­fiskiVið­mæl­endur Heim­ild­ar­innar segja íbúa hafa við­ur­kennt að búrið sé notað til að veiða ketti.

Ekki hefur þó fengið stað­fest að kettir hafi endað í umræddu búri en sögu­sagnir þess efnis geisa á sam­fé­lags­miðlum. Fjallaði DV meðal ann­ars um þær færslur í frétt í gær.

Fjöldi tilkynninga til MAST

„Við höfum vissu­lega fengið til okkar til­kynn­ingu um aðila sem er með felli­búr,“ segir Hrönn Ólína Jör­unds­dóttir, for­stjóri Mat­væla­stofn­unar (MAST), sem sinnir eft­ir­liti vegna illrar með­ferðar á dýrum. „Við höfum rann­sakað þetta, fengið fleiri ábend­ingar og skoðað þetta aftur.“

„Við­kom­andi segir að það hafi aldrei komið dýr í gildr­una“
Hrönn Ólína Jör­unds­dóttirFor­stjóri MAST segir að eig­andi búrs­ins hafi sagt að í það hafi aldrei komið dýr.

Hún segir að strangt til tekið sé ekki ólög­legt að eiga felli­búr. „Fellibúr eru til þess fallin að hand­sama ketti, kan­ínur eða laus dýr og valda ekki dýr­unum skaða. Við höfum í raun og veru engar sann­anir fyrir því að við­kom­andi sé að láta kett­ina hverfa. Það er allt annað. Við­kom­andi segir að það hafi aldrei komið dýr í gildr­una.“

Hrönn segir búr af þessu tagi oft vera notuð til að hjálpa dýrum í neyð, til dæmis þegar þau flýja svæði vegna elds­voða. „Að eiga eða nota slík búr, það er ekk­ert ólög­legt við það,“ segir hún en seg­ist ekki geta stað­fest neina teng­ingu á milli til­vist búrs­ins og hvarfs katta í hverf­inu.

Fjarlægðu ekki búrið

Dýra­þjón­usta Reykja­víkur (DÝR) stað­festir að hafa fengið vit­neskju um búrið en ekki gert það upp­tækt eins og fram kom í frétt DV. „Við fjar­lægðum sann­ar­lega ekki búr úr Árbænum í síð­ustu viku en fengum upp­lýs­ingar um að þar væri felli­búr ætlað köttum og könn­uðum því hvort það væri nokkuð gam­alt búr frá Reykja­vík­ur­borg, en svo reynd­ist ekki vera,“ segir í svari DÝR við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.

„Þar sem strangar reglur gilda um með­ferð slíkra búra og laga­skylda er um ákveðna tíðni eft­ir­lits með búr­unum höfum við þá starfs­reglu að til­kynna ávallt notkun slíkra búra til MAST sem fer með eft­ir­lit með vel­ferð dýra,“ segir enn­fremur í svari DÝR.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár