Áhrif tolla Bandaríkjanna leggjast misþungt á ríki Evrópusambandsins

Stór banda­rísk lyfja­fyr­ir­tæki hafa komið sér fyrir á Írlandi vegna skatta­hag­ræðis. Þessi fyr­ir­tæki verða fyrir miklum áhrifum af tollum Trump.

Nú er rúm vika síðan Banda­ríkja­for­seti, Donald Trump, náði því fram að 15 pró­senta tollar yrðu lagðir á öll aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins. Löndin sem um ræðir eru mis­háð banda­rískum mark­aði, sem þýðir að toll­arnir sem tóku gildi nú í byrjun mán­aðar leggj­ast mis­þungt á þessi ríki. 

Ef mið er tekið af verð­mætum er Þýska­land til að mynda langstærsti útflytj­andi Evrópu til Banda­ríkj­anna. Banda­ríski mark­að­ur­inn er mik­il­vægur fyrir útflutn­ing á bílum, stálum og verk­færum. Árið 2024 nam þýskur vöru­út­flutn­ingur til Banda­ríkj­anna nam 161,2 millj­örðum evra. 

Þar á eftir koma Írland og Ítalía, sem fluttu vörur að verð­mæti 72 millj­örðum og 64 millj­örðum evra til Banda­ríkj­anna árið 2024, sam­kvæmt Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Frakk­land er ekki eins við­kvæmt fyrir áhrifum toll­anna, þótt þar séu stór­fyr­ir­tæki í flug­véla­iðn­aði, mat­væla­iðn­aði, víni og lúx­usvörum sem kunna að missa mark­aði. 

Lyfjafyrirtækin í Írlandi 

Írland beinir meira en fjórð­ung af vöru­út­flutn­ingi sínum til …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár