Flytur erindi um viðbrögð við kjarnorkuárásum á Ísland

Guðni Th. Jóhann­es­son mun ræða kjarn­orkuvá á Íslandi á tímum Kalda stríðs­ins á mál­þingi sem haldið er til minn­ingar um kjarn­orku­árás­irnar á Hírósíma og Nagasakí fyrir 80 árum.

Flytur erindi um viðbrögð við kjarnorkuárásum á Ísland
Guðni Th. Jóhann­es­son Pró­fess­or­inn mun ræða kjarn­orkuvá á Íslandi á tíma Kalda stríðs­ins á mál­þingi á mið­viku­dag.

„Ef kjarn­orku­sprengja spryngi yfir Reykja­vík dæju allir bæj­ar­búar.“ Varnir og við­brögð við kjarn­orku­árásum á Ísland í kalda stríð­inu.

Þetta er yfir­skrift erindis sem Guðni Th. Jóhann­es­son, sagn­fræði­pró­fessor og fyrr­ver­andi for­seti Íslands, mun flytja á mál­þingi sem stendur frá. 15 til 17 á mið­viku­dag í Ráðhúsi Reykja­víkur.

Sam­starfs­hópur frið­ar­hreyf­inga stendur fyrir mál­þing­inu í til­efni af því að 80 ár eru liðin frá því að Banda­ríkja­her varp­aði kjarn­orku­sprengjum á Hírósíma og Nagasakí. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar, setur mál­þingið en auk Guðna munu Rósa Magn­ús­dóttir pró­fessor og Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur verða með erindi og Hörður Torfason flytur tón­list.

Kl. 21 um kvöldið verður ljóða­lestur á frið­ar­ljóðum í Hljóm­skál­anum þar sem fram koma ljóð­skáldin Anton Helgi Jónsson, Eygló Jóns­dóttir, Eyrún Ósk Jóns­dóttir, Sunna Dís Más­dóttir, Sigurður Skúlason, Soffía Bjarna­dóttir og Valdimar Tómasson.

Kjarn­orkuvá á ÍslandiMyndverk eftir Einar Stein­gríms­son frá byrjun níunda ára­tug­ar­ins lýsir kjarn­orkuógn­inni í Kalda stríð­inu.

Kertafleyt­ing fer fram kl. 22:30 við suð­vest­ur­enda Reykja­vík­ur­tjarnar til minn­ingar um fórn­ar­lömb kjarn­orku­árásanna. Snæbjörn Guð­munds­son for­maður Nátt­úru­griða flytur ávarp og Steinunn Þóra Árna­dóttir verður fund­ar­stjóri. Flot­kerti verða seld á staðnum og kosta 1.000 krónur.

Kertafleyt­ingar verða einnig haldnar sama kvöld á Akureyri, Ísafirði, Pat­reks­firði, Reyð­ar­firði og Seyð­is­firði en þetta mun vera met­fjöldi staða sem taka þátt í minn­ing­ar­at­höfn­inni. Á Aust­ur­landi hefj­ast þær kl. 22 þar sem dimmir fyrr.

Að við­burð­inum standa Félag leik­skóla­kenn­ara, Friðar og mann­rétt­inda­hópur BSRB, Menn­ingar og frið­ar­sam­tökin MFÍK, Sam­hljómur menn­ing­ar­heima, Samtök hern­að­ar­and­stæð­inga og Búddista­sam­tökin SGI á Íslandi. Dag­skráin er styrkt af BSRB, Eflingu og Sameyki.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár