Hvað er allt þetta plast að gera við heila okkar?

Heims­byggðin reynir að stöðva útbreiðslu örplasts.

Hvað er allt þetta plast að gera við heila okkar?
Plast úr sjónum Hér er lager í Hollandi með end­ur­unnið plast sem fengið er úr sjónum við Taíland. Mynd: AFP

Örsmáar plast­agnir sem kall­ast örplast hafa safn­ast upp í heilum manna, en sér­fræð­ingar segja að ekki séu enn komnar nægar sann­anir til að segja til um hvort það valdi okkur skaða.

Þessar plast­agnir, sem eru að mestu ósýni­legar, hafa fund­ist allt frá fjallstindum til úthafs­botns­ins, í loft­inu sem við öndum að okkur og matnum sem við borðum. Þær hafa einnig fund­ist víða í manns­lík­am­anum, í lungum, hjörtum, fylgjum og jafn­vel farið yfir blóð-heila höml­urnar (e. blood-brain barrier).

Sívax­andi útbreiðsla örplasts hefur orðið lyk­il­at­riði í við­leitni til að semja fyrsta alþjóða­samn­ing heims um plast­mengun, en næsta umferð við­ræðna Sam­ein­uðu þjóð­anna verður haldin í Genf í næstu viku.

Áhrif örplasts og enn smærri nanóplasts á heilsu manna eru ekki enn að fullu skilin, en vís­inda­menn hafa unnið að því að afla frek­ari upp­lýs­inga á þessu til­tölu­lega nýja sviði.

Mest áber­andi rann­sóknin sem skoðar örplast í …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Þetta er ógnvægjandi, og nú eru vindmillur það sem á að bjarga efnahagslífinu á Íslandi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár