Íslandsvinur gripinn af Ísraelsher

Chris Smalls, stofn­andi verka­lýðs­fé­lags Amazon, var gestur á fundi Sós­í­alista­flokks­ins á Íslandi í fyrra. Hann og áhöfn báts sem flutti mat­væla­að­stoð til Gaza voru tekin af ísra­elska sjó­hernum á laug­ar­dag.

Íslandsvinur gripinn af Ísraelsher
Chris Smalls á Sós­í­alista­þingi Smalls, fyrir miðju, tók þátt í umræðum en á mynd­inni er lengst til vinstri Karl Héðinn Krist­jáns­son, stjórn­ar­maður í Sós­í­alista­flokknum, og lengst til hægri Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi. Mynd: Roði

Banda­ríski verka­lýðs­leið­tog­inn Chris Smalls er meðal þeirra sem teknir voru af Ísra­els­her á laug­ar­dag á bátnum Handala sem flutti mat­væla­að­stoð til Gaza.

Chris Smalls var á Íslandi í fyrra og tók þátt í umræðum á þingi Sós­í­alista­flokks Íslands með Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar. Þá var hann gestur í þætti á Sam­stöð­inni sem Karl Héðinn Krist­jáns­son, nú stjórn­ar­maður í Sós­í­alista­flokknum, stýrði ásamt Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur borg­ar­full­trúa og fleiri gestum.

Báturinn Handala lagði frá Gallipoli á Ítalíu fyrr í mán­uð­inum og stefndi til Gaza með mat­væla­að­stoð, ung­barna­blöndu og sjúkra­vörur. Alls voru 21 á bátnum, þar af 19 aðgerða­sinnar og tveir frétta­menn frá Al Jazeera, sam­kvæmt frétt BBC.

Sjóher Ísrael stöðv­aði bát­inn á laug­ar­dag og sýnir mynd­band her­menn stíga um borð og skip­verja með hendur á lofti. Utan­rík­is­ráðu­neyti Ísrael sagði bát­inn hafa komið með ólög­legum hætti inn í land­helgi Gaza og að allir skip­verjar væru öruggir.

Í júní var sænski aðgerðasinn­inn Greta Thunberg stöðvuð ásamt ell­efu félögum sínum þegar hún gerði svip­aða til­raun til að sigla til Gaza. Ísrael hefur stöðvað alla mann­úð­ar­að­stoð til Gaza frá 2. mars þegar hern­aður á svæð­inu byrj­aði aftur eftir tveggja mán­aða vopna­hlé.

Tókst á við Jeff Bezos og sigraði

Chris Smalls varð heims­frægur eftir að hann var rek­inn frá Amazon fyrir að skipu­leggja útgöngu starfs­fólks í mars 2020 vegna ólíð­andi aðstæðna við upp­haf Covid-19 far­ald­urs­ins. Í kjöl­farið stofn­aði verka­lýðs­fé­lag Amazon og vann sögu­legan sigur árið 2022 þegar starfs­menn í New York hjá þessum næst­stærsta vinnu­veit­anda Banda­ríkj­anna ákváðu að sam­ein­ast í félagið.

„Sem faðir, verka­maður og sam­úð­ar­fullur verka­lýðs­leið­togi bauð Chris Small sig fram til að ganga um borð á bátnum sem lagði úr höfn frá Gallipoli á Ítalíu 20. júlí 2025,“ segir í til­kynn­ingu frá banda­ríska verka­lýðs­fé­lag­inu CFA. „Báturinn var fullur af ung­barna­blöndu, mat og sjúkra­vörum. Frið­sam­legt skipið var tekið af ísra­elskum stjórn­völdum eftir sex daga sigl­ingu á alþjóð­legu haf­svæði, aðeins 40 sjó­mílum frá svelt­andi fólki á Gaza sem þarf bráð­nauð­syn­lega á aðstoð að halda.“

„Chris Smalls er verka­lýðs­bróðir okkar“

CFA segir hund­ruð þús­unda Palest­ínu­manna hafa verið særða eða drepna af Ísra­els­her und­an­farin tæp tvö ár. Þau sem eftir lifi séu króuð af án matar. „Chris Smalls er verka­lýðs­bróðir okkar,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Hann hefur af hug­rekki tek­ist á við óvini af yfir­þyrm­andi stærð­argráðu og sigr­aði Jeff Bezos, rík­asta mann heims árið 2020, þegar hann, starfs­maður í vöru­húsi án nokk­urrar form­legrar mennt­unar eða þjálf­unar, stofn­aði verka­lýðs­fé­lag Amazon. Hann hefur verið ein sterkasta röddin í verka­lýðs­hreyf­ing­unni.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár