Fá 30 prósent afslátt af skólagjöldum ef þau geta borgað

Dæmi eru um að stúd­entar sem hafa efni á borgi upp skóla­gjalda­lán sín strax við útskrift og fái þannig 30 pró­sent afslátt og sleppi við vaxta­byrði. Forseti Lands­sam­taka íslenskra stúd­enta segir grun um að fólk mis­noti lána­sjóðs­kerfið.

Fá 30 prósent afslátt af skólagjöldum ef þau geta borgað
Náms­maður Dulinn hvati er fyrir efna­fólk til að taka skóla­gjalda­lán til þess að fá afslátt af skóla­gjöldum. Mynd: Víkingur

Dæmi eru um það að náms­menn sem hafa tekið lán fyrir skóla­gjöldum sínum hjá Mennta­sjóði náms­manna borgi lánin til baka í heild sinni við náms­lok. Á sama tíma þiggi þeir 30 pró­sent nið­ur­fell­ingu á lán­inu og fái þannig 30 pró­sent afslátt af skóla­gjöldum án þess að þurfa að borga þá vexti sem aðrir lán­tak­endur greiða á líf­tíma láns­ins.

Lísa Margrét Gunn­ars­dóttirForseti LÍS segir sjóð­inn ekki vera félags­legan jöfn­un­ar­sjóð ef efna­fólki er hyglt.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar eru þessi til­felli þekkt innan Mennta­sjóðs náms­manna. Ef náms­maður lýkur gráðu sinni á réttum tíma á hann rétt á 30 pró­sent nið­ur­fell­ingu á eft­ir­stöðvum láns­ins við náms­lok. Markmið þess­ara breyt­inga, sem sam­þykktar voru með nýjum lögum um Mennta­sjóð náms­manna árið 2020, var „að stuðn­ingur við lán­þega verði jafn­ari, gagn­særri og sann­gjarn­ari“, að því er sagði í athuga­semdum við frum­varpið.

Kerfi sem býður upp á að vera …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár