Rannsókn á Samherjamálinu lokið

Fimm ára rann­sókn hér­aðssak­sókn­ara á Sam­herja er lok­ið. Níu Ís­lend­ing­ar eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings.

Rannsókn á Samherjamálinu lokið
Bernhard Esau og Þorsteinn Már Baldvinsson Samherjamálið varðaði meintar mútugreiðslur Samherja til að komast yfir fiskveiðiheimildir í Namibíu.

Rannsókn héraðssaksóknara á Samherjamálinu er lokið og saksóknari mun taka ákvörðun um hvort ákært verði í því.

Níu eru með réttarstöðu sakbornings, þar á meðal Þorsteinn Már Baldvinsson sem nýhættur er sem forstjóri Samherja. RÚV greinir frá.

Upplýst var um málið í fréttaþættinum Kveik í nóvember 2019 í samstarfi við Stundina (forvera Heimildarinnar), Wikileaks og Al Jazeera. Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður Samherja, steig fram sem uppljóstrari í málinu.

Málið varðar meintar mútugreiðslur Samherja til hátt settra embættismanna í Namibíu til að komast yfir fiskveiðiheimildir í landinu. Þá var hagnaðurinn tekinn út í gegnum flókið net félaga sem teygðu sig víða heim og vöktu upp spurningar um skattaundanskot.

Rannsóknin tók 5 ár og mikið af gögnum eru undir, þar á meðal á annað þúsund smáskilaboð á milli Þorsteins Más og Jóhannesar.

Þorsteinn Már steig tímabundið til hliðar sem forstjóri Samherja eftir að málið kom upp en tók svo við starfinu aftur. Hann hætti sem forstjóri 26. júní síðastliðinn og Baldvin Þorsteinsson sonur hans tók við sem forstjóri.

Þá höfðu Þorsteinn Már og Kristján Vilhelmsson fært hluti sína í Samherja til barnanna sinna sem eiga nú fyrirtækið.

Tveir namibískir ráðherrar sögðu af sér út af málinu, dómsmálaráðherra og sjávarútvegsráðherra.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari tók fram í samtali við fréttastofu RÚV að málið hefði verið umfangsmikið og náð yfir langt tímabil. Það sé því áfangi, ákveðin kaflaskil, að klára þetta stóra mál.

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ari naut skattfríðinda í Portúgal
2
Stjórnmál

Ari naut skatt­fríð­inda í Portúgal

Ari Edwald, sem skip­ar fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík, fékk stöðu sér­fræð­ings við flutn­inga lög­heim­il­is til Portúgal sem veitti hon­um ým­is skatt­fríð­indi. Hann gekk í des­em­ber frá kaup­um að íbúð í Garða­bæ fyr­ir 183 millj­ón­ir króna en flutti í gær lög­heim­ili sitt í leigu­íbúð lög­manns í mið­borg­inni. „Það er bráða­birgð­ar­ráð­stöf­un,“ seg­ir Ari.
Hver er raunverulegur fjöldi kvenna á örorkulífeyri?
5
Staðreyndavaktin

Hver er raun­veru­leg­ur fjöldi kvenna á ör­orku­líf­eyri?

Því hef­ur ver­ið hald­ið fram að allt að 23 pró­sent kvenna sé á ör­orku­líf­eyri hér á landi. Hið rétta er að 13,5 pró­sent kvenna eru á ör­orku- eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og 8 pró­sent karla. Hlut­fall milli kvenna og karla á ör­orku­líf­eyri hef­ur hald­ist það sama í ára­tugi en ör­orku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þeg­um hef­ur al­mennt fjölg­að.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sautján hætt ári eftir framkvæmdastjóraskipti
4
Innlent

Sautján hætt ári eft­ir fram­kvæmda­stjóra­skipti

Nokkr­ir starfs­menn Sól­heima í Gríms­nesi hafa lýst yf­ir óánægju með stjórn­ar­hætti síð­an fram­kvæmda­stjóra var skipt út fyr­ir ári og nokk­ur fjöldi hef­ur sagt skil­ið við stað­inn. „Það er bara skelfi­legt ástand,“ seg­ir starfs­mað­ur um breyt­ing­una á starfs­anda. Stjórn­ar­formað­ur Sól­heima seg­ir hins veg­ar mikla ánægju með rekst­ur­inn og starfs­manna­velt­una ekki óeðli­lega.
Ari naut skattfríðinda í Portúgal
5
Stjórnmál

Ari naut skatt­fríð­inda í Portúgal

Ari Edwald, sem skip­ar fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík, fékk stöðu sér­fræð­ings við flutn­inga lög­heim­il­is til Portúgal sem veitti hon­um ým­is skatt­fríð­indi. Hann gekk í des­em­ber frá kaup­um að íbúð í Garða­bæ fyr­ir 183 millj­ón­ir króna en flutti í gær lög­heim­ili sitt í leigu­íbúð lög­manns í mið­borg­inni. „Það er bráða­birgð­ar­ráð­stöf­un,“ seg­ir Ari.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár