Sumarblað Vísbendingar er helgað nýsköpun, áskorunum og hugverkaiðnaði. Umfjöllunin fylgir beint í kjölfar vorblaðsins sem lagði mesta áherslu á skapandi greinar og listir. Þar var einnig viðtal um nýsköpun í norrænu samhengi ásamt greinum um gervigreind. Í fyrrasumar var ferðaiðnaðurinn til umfjöllunar, en þar var einnig að finna greinar um hönnun fyrir ferðalanga og nærandi ferðaþjónustu, ásamt viðtali um nýsköpun á því sviði ferðageirans. Viðtölin í blaðinu nú í sumar greina nýsköpun á tveimur sviðum húsnæðis-hönnunar og uppbyggingar-geimleikja.
Tölvuleikjafyrirtækið CCP hefur möguleika á því að skapa ríkinu tekjur langt umfram þá styrki sem það hefur hlotið í formi endurgreiðslna á rannsóknar- og þróunarstarfi. Til þess þarf ekki mikla nýsköpunartilburði hjá embætti Skattsins en þaðan mætti leita í smiðju sænsku Skattstofunnar (s. Skatteverket) sem hóf að leita eftir skatttekjum innan úr tölvuleikjaheimum fyrir tveimur áratugum. Í tölvuleikjamyndskreyttri vísindaskáldsögu Lavaforming verksins í íslenska sýningarskálanum í Feneyjum varð græðgin eftir hrauni svo mikil að fyrirtæki þrívíddarprentunar vélmennaælunnar endaði fljótt í gjaldþroti.
Gömul hag- og verkfræðileg sköpun
Hagfræðingurinn Mariana Mazzucato dró fram fyrir tólf árum hvernig nánast öll nýsköpun verður til fyrir tilstilli fjármögnunar hins opinbera, í merkri bók um nýsköpunarríkið þar sem hún afsannar goðsagnir um einkamarkaðinn og hið opinbera út frá áhættu og nýsköpun (e. The Entrepreneurial State - Debunking Public vs. Private Myths in Risk and Innovation).
Verkfræðingurinn Henry Mintzberg hefur kennt okkur sem lærðum MBA úr hans fræðum að bjórar geti verið afbragðs fyrirmynd í byggingartækni, sérstaklega fyrir stíflur, en Hoover-stíflan í Bandaríkjunum er bogadregin að hætti bjóra.
Hann safnar listaverkum bjóranna og fjallar einnig um hvernig uppruni orðsins nýsköpun (f. entreprendre) úr frönsku á rót sína í því að gera eða byggja og verður síðar að fyrirtækjarekstri. Í sænsku (s. entreprenör) má finna svipaðar orðsifjar en sama orðið er þar notað um nýsköpun, fyrirtækjarekstur og smíði húsa.
Rétt er að minna hér á aðra grein úr vorblaðinu um uppruna orðsins innviða, sem einnig kemur óvenjulega úr frönsku. Í hvorugu tilfelli hinna upprunalegu frönsku orða er reglustikan sérlega hjálplegt tól. En í þessu samhengi fjalla tvær greinar sumarblaðsins um arkitektúr og húsnæði. Við sögu koma einnig tvö nýsköpunarfyrirtæki sem sprottið hafa upp úr námi í Listaháskólanum og þrjú önnur nýsköpunarfyrirtæki af mismunandi sviðum tölvutækni.
Nýjungar stjórnvalda
Loks má nefna að tvær fyrstu greinar sumarblaðsins fjalla beinlínis um stefnumótun stjórnvalda á sviði nýsköpunar. Rétt er að benda hér á mun greinanna varðandi hlutdeild í landsframleiðslu annars vegar og útflutningstekjur hins vegar. Þá er mikilvægt að tölur séu uppfærðar með verðlagsbreytingum og hlutdeildar í landsframleiðslunni. En auk þess koma viðtölin og fjöldi annarra greina inn á hlutverk stjórnvalda, meðal annars sú síðasta sem fjallar um byltinguna í máltækni vegna gervigreindar. Einnig fjallar þriðja grein blaðsins um þá byltingu gervigreindarinnar og áhrifin á framleiðni og vinnumarkað, sérstaklega út frá fámennum fyrirtækjum.
Þá er vert að benda hér einnig á doktorsritgerð Ágústar Hjartar Ingþórssonar frá stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands frá því í fyrra um opinbera vísinda- og tæknistefnu á Íslandi og Vísinda- og tækniráð árin 2003–2023. Áform stjórnvalda um atvinnustefnu sem mun vera í smíðum og forsætisráðherra greindi frá í samtali í Háskóla Íslands fyrr í mánuðinum eru mikilvæg í því sambandi.
Alvöru nýsköpun og virkilegur þverfagleiki er það sem mun auðveldlega geta bjargað okkur út úr þeim ógöngum sem heimshagkerfið er komið í með eyðingu líffræðilegs fjölbreytileika og veðrabrigða hamfara vegna loftslagskrísunnar. Framleiðniaukning fyrir aukna velsæld verður aðeins möguleg ef tekið er tillit til takmarka jarðarinnar í því sambandi. Unga fólkið sem skrifar í blaðið kallar enda eftir samfélagslegri umbreytingu. Það vekur von um bjartari framtíð nú á sumarsólstöðum.
Leiðarinn er úr nýjasta tölublaði Vísbendingar, rits um viðskipti og efnahagsmál. Hægt er að gerast áskrifandi að Vísbendingu hér.
Heimildin og Vísbending eru bæði gefin út af Sameinaða útgáfufélaginu ehf.
Efnisyfirlit sumarblaðs Vísbendingar 2025:
Viðtal: Hilmar Veigar Pétursson og Stefán Þórarinsson - Hvernig á nýsköpun sér stað í tölvuleikjaheiminum?
Ingólfur Bender og Sigríður Mogensen - Vöxtur hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika og framleiðni
Hannes Ottósson og Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson - Samræmi milli stefnu og þróunar nýsköpunar í atvinnulífinu
Helga Waage - Örsmá en áhrifamikil
Magnea Þ. Guðmundsdóttir - Hvers virði er vönduð bygging?
Hildur Gunnarsdóttir - Danska leiðin
Viðtal: Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson - Verða hús framtíðarinnar mótuð úr fljótandi hrauni?
Þóra Einarsdóttir - Þróun háskólanáms, listir og færni til framtíðar
Unnur Valdís Kristjánsdóttir - Sagan af Flothettu: Hvernig verður nýsköpun til?
Markús Bjarnason - First Love Synthesizer: Frá fyrstu frumgerð til fjöldaframleiðslu
Stefán Gunnlaugur Jónsson - Óendanlegt magn afþreyingar
Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir - Ferlið er fjárfestingin
Vilhjálmur Þorsteinsson - Bylting fram undan – en verður hún á íslensku?
Athugasemdir