Leitar til lögfræðings eftir uppsögn á Landspítalanum

Ragnar Freyr Ingv­ars­son upp­lifði trún­að­ar­brest þegar honum var sagt upp og getur ekki hugsað sér að snúa aftur að óbreyttu, enda séu skýr­ingar á upp­sögn­inni ósann­fær­andi. „Ég get ekki skilið hvernig á að ná ein­hverjum sparn­aði með því að segja upp manni í launa­lausu leyfi.“

Ragnar Freyr Ingvarsson Ragnar Freyr sagðist upplifa uppsögnina sem trúnaðarbrest í samtali við blaðamann á föstudag. Hann hafi verið virkur þátttakandi í opinberri umræðu og vera málefnalegur, en kannski hafi einhverjum mislíkað eitthvað. Nú þykir honum að sér vegið.

„Þetta er þannig trún­að­ar­brestur að mér finnst að mér vegið,“ segir Ragnar Freyr Ingv­ars­son, læknir og for­maður Lækna­fé­lags Reykja­víkur (LR), en honum var óvænt sagt upp störfum hjá Land­spít­al­anum fyrir helgi. Hann seg­ist ekki geta hugsað sér að snúa aftur til starfa hjá Land­spít­al­anum að svo komnu.

„Þetta er þannig trún­að­ar­brestur að það væri erfitt að horfa í augun á yfir­manni mínu og segj­ast í ein­lægni vilja vinna fyrir hann,“ segir Ragnar.

Ragnar Freyr seg­ist hafa verið orð­laus þegar honum voru færðar frétt­irnar um upp­sögn­ina í síð­ustu viku. Ragnar Freyr hefur verið í launa­lausu leyfi frá störfum sínum hjá spít­al­anum síðan í jan­úar og sinnir nú rekstri sínum hjá Gigt­ar­mið­stöð­inni sem er í Heilsukla­s­anum á höfða. Hann gagn­rýnir útskýr­ingu spít­al­ans á því að upp­sögnin sé hluti af aðhalds­kröfu spít­al­ans. Upp­sögnin kom flatt upp á Ragnar sem telur hana ólög­mæta og að baki henni búi engar mál­efna­legar ástæður …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár