Rútustæðin færð frá Hallgrímskirkju

Hópbílar munu stoppa á stæði við Gömlu Hring­braut en safn­stæði við Hall­gríms­kirkju mættu óánægju nágranna. Álagstoppar voru á sama tíma og börn ganga í og úr skóla.

Rútustæðin færð frá Hallgrímskirkju
Hall­gríms­kirkja Sjö rútur stopp­uðu við Hall­gríms­kirkju á fimmtán mín­útna tíma­bili á morgn­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Safn­stæði hóp­bif­reiða við Hall­gríms­kirkju verður aflagt og nýtt tíma­bundið stæði verður tekið í notkun við Gömlu Hring­braut ofan við BSÍ.

Þetta var sam­þykkt á fundi umhverfis- og skipu­lags­nefndar Reykja­vík­ur­borgar í gær. Í kynn­ingu á fund­inum kom fram að „villta vest­urs“ ástand hafi ríkt fyrir 2017 þegar rútur fóru um flest allar götur mið­borg­ar­innar. Síðan þá hafi akst­urs­bann­svæði fyrir rútur verið inn­leitt og stæði afmörkuð.

„Það er mikið fagn­að­ar­efni að nýtt safn­stæði fyrir hóp­bíla taki loks við því stæði sem verið hefur við Hall­gríms­kirkju“
Úr bókun meiri­hlut­ans

Nágrannar hafa hins vegar kvartað undan rútum sem leggja við Hall­gríms­kirkju og eru umferð­ar­topp­arnir á sama tíma og börn eru á leið í og úr skóla. Þegar mest hefur verið hafa sjö rútur stoppað á svæð­inu á 15 mín­útna tíma­bili á morgn­ana.

„Það er mikið fagn­að­ar­efni að nýtt safn­stæði fyrir hóp­bíla taki loks við því stæði sem verið hefur við Hall­gríms­kirkju, en íbúar og rekstr­ar­að­ilar á svæð­inu hafa lengi vakið athygli á þeirri miklu umferð, hættu, mengun og ónæði sem af því hljót­ist,“ segir í bókun full­trúa meiri­hlut­ans við fund­ar­gerð­ina.

„Tillit til þarfa ferða­þjón­ustu og gesta borg­ar­innar er full­nægt með því að taka upp nýtt sleppi­stæði við gömlu Hring­braut,“ segir enn­fremur. „Það er í betra návígi við gisti­rými á svæð­inu en stæðið við Hall­gríms­kirkju, og hægt er að nýta stæði sem áður var nýtt af starfs­fólki Lands­spít­al­ans, sem nú tekur í notkun bíla­stæða­hús sem verið er að opna. Gert er ráð fyrir að þetta fyr­ir­komu­lag sé tíma­bundið, þar til farið verði í úrbætur á BSÍ reit, eða ný mið­læg umferð­ar­mið­stöð hóp­bif­reiða er tekin í notkun.“

Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, fagn­aði einnig breyt­ing­unni. „Með því að skapa safn­stæði hóp­ferða­bíla við Gömlu Hring­braut er verið að koma til móts við hags­muna­að­ila en jafn­framt minnka umferð stærri öku­tækja um Hall­gríms­kirkju, sem kemur til með að auka umferð­ar­ör­yggi fyrir gang­andi veg­far­endum,“ segir í bókun hans við fund­ar­gerð­ina.

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks sátu hjá við afgreiðslu máls­ins.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár