Höfum dregið úr urðun en ekki úr neyslu

Rakel Sig­ur­veig Krist­jáns­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Umhverfis- og orku­stofnun, segir að við séum að end­ur­nýta meira en áður en að neysla fari ekki minnk­andi. Ný úrgangs­töl­fræði sýnir að 32 pró­sent heim­il­is­úr­gangs fari í end­ur­vinnslu en lág­markið er fimm­tíu pró­sent. Jákvætt er að urðun minnk­aði um 46 pró­sent.

Höfum dregið úr urðun en ekki úr neyslu

Lang­mestur úrgangur á Íslandi eða 88 pró­sent er end­ur­nýttur. Þetta kemur fram í nýjum magn­tölum fyrir úrgang á Íslandi sem Umhverfis- og orku­stofnun gaf út nýverið. Hátt hlut­fall end­ur­nýt­ingar má helst rekja til jarð­vegsúr­gangs sem er þyngsti og stærsti hluti úrgangs. Mik­il­vægt er að ein­blína á heim­il­is­úr­gang­inn en Ísland þarf að halda vel á spöð­unum til að upp­fylla lág­marks­kröfur um end­ur­vinnslu hans. Nú náum við ein­ungis 32 pró­sentum af fimm­tíu.

„Langal­geng­asta með­höndlun jarð­vegs er að nýta hann í fyll­ingar sem eru teg­und af end­ur­nýt­ingu. Það útskýrir þetta rosa­lega háa hlut­fall end­ur­nýt­ingar,“ segir Rakel Sig­ur­veig Krist­jáns­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Umhverfis- og orku­stofnun. Hún bætir við: „Það sem við erum meira að horfa á þegar við erum að skoða hversu vel við stöndum okkur er heim­il­is­úr­gangur – sem er þá úrgangur frá heim­ilum og fyr­ir­tækjum. Það er úrgangur sem við höfum mikla stjórn á og fylgir neyslu.“

Hlutfall …
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Í greininni er mynst á fyrirkomulag sem kallast "Borgað þegar hent er". Ég er hræddur um að slíkt kerfi muni ekki virka til lengdar. Það verður dýrt í framkvæmd og svo mun það leiða til þess að fólk fer að henda ruslinu einhverstaðar annarstaðar en í tunnuna sína til þess að sleppa við að þurfa borga.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár