Starfsmaður leikskóla sýknaður eftir atvik með barni

For­eldrar barns fóru fram á 1 milljón króna í miska­bætur fyrir lík­ams­árás gegn barn­inu en starfs­menn leik­skól­ans töldu ekk­ert óvenju­legt hafa átt sér stað.

Starfsmaður leikskóla sýknaður eftir atvik með barni
Leik­skóla­börn Starfs­mað­ur­inn harm­aði að dreng­ur­inn hefði fengið áverka eftir atvikið. Mynd: Golli

Hér­aðs­dómur Reykja­ness sýkn­aði í dag starfs­mann á leik­skóla fyrir lík­ams­árás og barna­vernd­ar­laga­brot sem hann var ákærður fyrir að hafa framið í maí 2022.

Nið­ur­staða dóms­ins var að áverkar á fimm ára barni á leik­skól­anum hafi komið til fyrir gáleys­is­verknað ákærða og ekki þótti sannað að hann hafi beitt dreng­inn and­legum eða lík­am­legum refs­ingum, hót­unum, ógn­unum eða sýnt honum ósið­legt athæfi.

Ákærði sagði í yfir­heyrslu að dreng­ur­inn væri eitt þeirra barna sem glímdi við hegð­un­ar­erf­ið­leika og beitti jafn­vel ofbeldi. Umræddan dag hafi dreng­ur­inn verið að koma sér inn í leik ann­arra barna í sand­kass­anum en að dreng­ur­inn hafi ausað sandi í and­lit þeirra. Dreng­ur­inn hafi síðar kastað sandi í and­lit ákærða og hann þá gripið í peysu drengs­ins í bringu­hæð „bara til að stoppa hann í eina sek­úndu frá því að hlaupa aftur í burtu“. Hann hafi svo leitt hann inn á hans deild svo annar starfs­maður, sem þekkti hann, gæti rætt við hann.

For­eldrar drengs­ins, sem sáu hluta af atburða­rásinni, töldu starfs­mann­inn hafa gripið í hægri öxl drengs­ins, marið hann með því og gefið honum bruna­sár á öxl, og hafa sýnt honum rudda­legt athæfi og yfir­gang. Dreng­ur­inn hafi hrópað „þú meiddir mig“.

Starfsmenn sáu ekkert óeðlilegt

Leik­skóla­stjór­inn kom fyrir dóm við aðal­með­ferð máls og stað­festi að nið­ur­staða könn­unar hefði leitt í ljós að ekk­ert óeðli­legt hefði átt sér stað í sam­skiptum ákærða og brota­þola þennan dag. Ákærði hafi gert allt hár­rétt þegar hann hjálp­aði drengnum að kom­ast út úr aðstæðum í sand­kass­anum.

Stað­festi leik­skóla­stjór­inn að dreng­ur­inn hefði þurft mik­inn stuðn­ing vegna hegð­un­ar­vanda. Enginn starfs­manna taldi sig hafa séð nokkuð óeðli­legt af hálfu starfs­manns­ins.

Tók dóm­ur­inn undir með ákærða að lög­reglu­rann­sókn máls­ins hafi verið „fremur óvönduð og ómark­viss“. Einnig hafi dreg­ist að taka skýrslur, en dómur féll í mál­inu rúmum þremur árum eftir að það kom upp. Dómurinn sagði ákærða aldrei hafa þrætt fyrir að hafa gripið í barnið, hafa harmað að það hafi hlotið áverka og sagt það hafa verið óvilja­verk. Starfs­mað­ur­inn hafi brugð­ist rétt við aðstæðum sam­kvæmt fram­burði starfs­manna og því hafi ekki verið hafið yfir skyn­sam­legan vafa að hann hafi framið brot.

Var hann því sýkn­aður, bóta­kröfu for­eldra son­ar­ins upp á 1 milljón króna vísað frá og þóknun rétt­ar­gæslu­manns og málsvarn­ar­laun verj­anda greidd úr rík­is­sjóði.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár