Hæ hó og jibbí jei þrátt fyrir nokkra dropa

Þjóð­há­tíð­ar­deg­in­um var fagn­að um allt land í gær. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­inn­ar mynd­aði líf­ið í mið­borg Reykja­vík­ur.

Hæ hó og jibbí jei þrátt fyrir nokkra dropa

Landsmenn létu veðrið ekki aftra sér og héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan víða um land.

Á Austurvelli flutti forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, ávarp og vakti máls á stöðu heimsmála. „Vitundin um krefjandi úrlausnarefni yfirgnæfir þó alls ekki trú mína á að þessir umbrotatímar færi okkur tækifæri til að standa okkur betur,“ sagði forseti.

„Þetta er ég sannfærð um því í starfi mínu er ég svo lánsöm að fá að umgangast ótal margt fólk sem stígur fram í nafni kærleikans,“ bætti hún við. „Það er úti um allt, ósérhlífna fólkið sem oft heyrist ekki hátt í en lætur gott af sér leiða á hverjum degi. Eins og ég hef áður sagt þá kýs ég að kalla þetta fólk riddara kærleikans og ég ítreka að það geta allir valið að vera í því liði.“

Reykvíkingar nutu svo lífsins í miðborginni, þrátt fyrir smá rigningu og var ljósmyndari Heimildarinnar viðstaddur til að festa hátíðarhöldin á filmu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár