Ungur maður lést á Esjunni

Viktor var aðeins 22 ára gam­all þegar hann lést af slys­förum í hlíðum Kistu­fells.

Ungur maður lést á Esjunni
Viktor Armann Kambizson var fæddur 30. des­em­ber 2002. Mynd: Facebook

Maðurinn sem leitað var á Esjunni aðfar­arnótt þriðju­dags og fannst lát­inn í hlíðum Kistu­fells hét Viktor Armann Kambizson og var aðeins 22 ára gam­all. 

Frá þessu greinir móðir Viktors, Hrönn Harð­ar­dóttir, á Facebook-síðu sinni, þar sem hún þakkar björg­un­ar­sveit­ar­fólki og lög­reglu fyrir aðgát og aðstoð. 

„Þessi fal­legi, skemmti­legi ynd­is­legi drengur, hann Viktor minn er lát­inn. Aðeins 22 ára gam­all. Hann er göngu­mað­ur­inn sem var leitað að í Esjunni í vik­unni. Hann fórst af slys­förum í hlíðum Kistu­fells,“ segir hún.

„Við færum björg­un­ar­sveit­ar­fólki sem leit­aði tímunum saman og langt fram á nótt okkar bestu þakkir. Sem og áhöfn þyrl­unnar sem fann dreng­inn minn. Og lög­regl­unni sem hélt utan um okkur og gaf reglu­lega upp­lýs­ingar um stöðu mála. Og þeim sem komu heim til okkar og til­kynntu and­látið. Fyrir nær­gætni og hlýju. Góður drengur er fall­inn frá, allt of snemma. Elsku Viktor minn, hvíldu í friði.“

Slys eru algeng á Esjunni og eru banaslys á fjöllum hvergi fleiri. Árið 2013 lést 58 ára gömul kona þegar hún féll í fjall­inu. Árið 2020 lést 23 ára gam­all maður í snjó­flóði við Móskarðs­hnúka. Þremur árum áður lést annar maður í snjó­flóði neðan við Hátind. Þá lét­ust tveir piltar árið 1979 í snjó­flóði vestan við Þver­fells­horn, en algeng­asta göngu­leiðin á fjallið liggur þar austan megin. Kistu­fell, þar sem ungi mað­ur­inn lést, er austar, handan við Gunn­laugs­skarð. Þar er bratti meiri en við Þver­fells­horn.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár