Lögreglan beitti rafvopni þrisvar sinnum á þremur mánuðum

Notkun raf­varn­ar­vopna hjá lög­reglu jókst á fyrsta árs­fjórð­ungi 2025. Þeim var beitt þrisvar sinnum og ógnað í 28 til­vikum. Vopnin eru umdeild, en eru nú orðin hluti af vopna­búri lög­regl­unnar.

Lögreglan beitti rafvopni þrisvar sinnum á þremur mánuðum

Lög­reglan beitti raf­vopni við hand­töku í þremur málum á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2025. Þetta kemur fram í nýrri árs­fjórð­ungs­skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra sem birt var á vef lög­regl­unnar í dag.

Samkvæmt skýrsl­unni var vopn­inu einnig ógnað eða það tekið úr slíðri í alls 28 málum á sama tíma­bili. Til sam­an­burðar var raf­varn­ar­vopni beitt tvisvar sinnum á síð­asta árs­fjórð­ungi 2024 og þá ógnað eða dregið fram í 13 málum.

Raf­varn­ar­vopn voru fyrst tekin í notkun hjá lög­reglu í sept­em­ber 2024 og eru þau nú form­lega hluti af vald­beit­ing­ar­tækjum lög­reglu, líkt og kylfur og pipar­úði. Að sögn rík­is­lög­reglu­stjóra eru vopnin hugsuð sem hluti af þeirri við­leitni að auka öryggi bæði lög­reglu og almenn­ings með því að fjölga val­kostum við við­brögð í aðgerðum.

Notkun raf­varn­ar­vopna hefur verið umdeild frá því þau voru tekin í notkun. Gagn­rýnendur hafa bent á hætt­una á mis­notkun og að vopnin geti skapað falskt öryggi í vald­beit­ingu. Þó að raun­veru­leg notkun sé enn til­tölu­lega fátíð, gefa nýj­ustu tölur til kynna að lög­reglan grípi mun oftar til raf­varn­ar­vopna nú en áður. Fjöldi til­vika þar sem vopnið er dregið fram eða ógnað með því hefur meira en tvö­fald­ast milli fjórð­unga, úr 13 í 28 mál.

Lög­reglan áformar að halda áfram reglu­bund­inni birt­ingu skýrslna um notkun raf­varn­ar­vopna. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár