Siðferðisspurningar vakna vegna uppbyggingar Andra og Birgis

Fjár­festar sem eru sak­aðir um að hafa milli­göngu um iðn­að­ar­njósnir fyrir millj­arða­mær­ing­inn Björgólf Thor Björg­ólfs­son vilja reisa þétt­býlt hverfi í um tveggja kíló­metra fjar­lægð frá vatns­vernd­ar­svæði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Svo virð­ist sem engin krafa sé uppi um sið­ferði fjár­festa þegar kemur að Kópa­vogsbæ.

Siðferðisspurningar vakna vegna uppbyggingar Andra og Birgis
Áætlað er að reisa byggð fyrir um 7000 íbúa ásamt 1200 hjúkr­un­ar­rýmum um í tveggja kíló­metra fjar­lægð frá vatns­vernd­ar­svæði. Mynd: Golli

Engar sið­ferði­legar kröfur virð­ast vera gerðar til verk­taka og þró­un­ar­fé­laga í Kópavogi en tveir lög­menn sem virð­ast hafa haft milli­göngu um umfangs­miklar njósnir fyrir auð­kýf­ing­inn Björgólf Thor Björg­ólfs­son hyggj­ast reisa fimm þús­und íbúðir og 1.200 manna hjúkr­un­ar­heim­ili í Kópavogi, að því gefnu að leyfi fáist hjá svæð­is­skipu­lags­nefnd höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Minni­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Kópavogs gagn­rýnir hug­myndir um upp­bygg­ingu á Gunn­ars­hólma, sem er land skammt frá Gvend­ar­brunnum. Þeir eru þó tví­stíg­andi þegar kemur að nýj­ustu fregnum varð­andi njósnir sem fjár­fest­arnir höfðu milli­göngu um fyrir hönd Björg­ólfs. Oddvitar meiri­hlut­ans svör­uðu ekki skila­boðum Heim­ild­ar­innar vegna grein­ar­innar.

Lífskjarni við Gvendarbrunna

Það var í jan­úar á síð­asta ári sem fregnir bár­ust af því að bæj­ar­ráð Kópavogs hefði sam­þykkt vilja­yf­ir­lýs­ingu við Aflvaka þró­un­ar­fé­lag um upp­bygg­ingu á svoköll­uðum „lífskjarna“ fyrir eldri borg­ara. Félagið myndi þá skuld­binda sig til þess að reisa fimm þús­und íbúðir fyrir eldri borg­ara og svo hjúkr­un­ar­heim­ili fyrir 1.200 ein­stak­linga. Hverfið yrði sér­hannað …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Á sama tíma hyggjast Veitur loka útivistarsvæðinu í Heiðmörk að mestu leyti með því að loka fyrir aðgengni. Margt furðulegt er í henni veröld en sumir virðast hafa frjálsari hendur en aðrir.
    1
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Fyrir utan nálægð við vatnsverndarsvæði þá er slæm hugmynd að þróa byggð í Gunnarshólma langt fjarri núverandi byggð. Að byggja gamalmenna gettó þarna er enn verri hugmynd.
    5
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Þurfum við hreint vatn? Hreint andrúmsloft kannski? 😄 Nei… við þurfum óheftan aðgang að þessum óbyggðum auðvitað…🤪 Græðum meiri monní …Það er hægt bara að sía sjó ef einhver vill drekka vatn. Persónulega finnst mér vatn ekki gott á bragðið og þess vegna algjör óþarfi 🧐
    0
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    Þetta eru nú meiru brunnmígarnir!
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár