ESB íhugar að slaka á reglum um flugtafir – neytendur mótmæla

Ef breyt­ing­arnar ganga í gegn munu allt að 75 pró­sent far­þega missa rétt sinn til bóta vegna tafa, að sögn regn­hlífa­sam­tök neyt­enda í Evrópu. Flug­fé­lög fagna hins vegar og segja breyt­ing­arnar nauð­syn­legar til að forð­ast að þurfa að aflýsa flugi.

ESB íhugar að slaka á reglum um flugtafir – neytendur mótmæla

Evr­ópu­sam­bandið íhugar að heim­ila flug­fé­lögum að seinka ferðum sínum lengur en nú er án þess að greiða far­þegum bætur -  - til­laga sem hefur kallað fram mikla reiði neyt­enda­sam­taka og klofið aðild­ar­ríkin.

Full­trúar 27 aðild­ar­ríkja ESB munu ræða málið í dag í Brussel. Stuðn­ings­menn til­lög­unnar halda því fram að breyt­ingin muni draga úr því að flugi sé aflýst. 

Samkvæmt núgild­andi reglum þurfa flug­fé­lög að greiða allt að 600 evrur í bætur, sem jafn­gildir u 93 þúsnd krónum, ef seinkun fer yfir þrjár klukku­stundir eða ef flugi er aflýst með minna en 14 daga fyr­ir­vara. Þessar reglur, sem settar voru árið 2004, hafa verið taldar sýna styrk ESB þegar kemur að því að vernda rétt­indi neyt­enda. 

Fugfélög kvarta hins vegar yfir miklum kostn­aði og segja að regl­urnar leiði stundum til þess að flugi sé frekar aflýst en að flugi sé seinkað, sem valdi keðju­verkun á flug­á­ætl­unum. „Að lengja svo­nefnd þol­mörk taf­ar­innar gefur flug­fé­lögum meira svig­rúm til að færa flug­vélar og áhafnir milli landa og halda áætl­unum gang­andi,“ segir full­trúi sam­taka flug­iðn­að­ar­ins Airlines for Europe (A4E).

Pólland, sem nú gegnir for­mennsku í ráð­herra­ráði ESB, hefur tekið upp gam­alt til­lögu­frum­varp fram­kvæmda­stjórn­ar­innar frá 2013 sem þá rann út í sand­inn.

Samkvæmt heim­ild­ar­mönnum hófust við­ræður um að hækka hámarks­tíma tafar án bóta í fimm klukku­stundir. En sum ríki, þar á meðal Þýska­land, eru mót­fallin breyt­ing­unni og samn­ingar standa yfir um mála­miðlun, að sögn evr­ópskra diplómata sem AFP ræddi við.

„Langar flug­tafir eru mjög ergi­legar. Þær eyði­leggja verð­skuld­aða frí­daga, trufla það skipu­lag sem fólk hefur gert og kosta þar að auki dýr­mætan tíma,“ sagði Stefanie Hubig, neyt­enda­mál­efna­ráð­herra Þýska­lands. „Hún bætti við að Þýska­land gæti ekki sam­þykkt breyt­ingar sem ein­ungis þjón­uðu hags­munum flug­fé­lag­anna – sér­stak­lega ekki svona skömmu fyrir háanna­tíma­bil sum­ars­ins.“

Meira flug, minna fé

A4E, sem meðal ann­ars fer með hags­muni Air France-KLM og Luft­hansa, segir að með því að hækka við­miðið í fimm klukku­stundir mætti forða allt að helm­ingi þeirra fluga sem nú eru aflýst vegna seink­ana

Hins vegar segir BEUC, regn­hlífa­sam­tök neyt­enda í Evrópu, að þetta myndi svipta allt að 75 pró­sent far­þega rétti til bóta. „Þetta er óásætt­an­legt skref aft­urá­bak í neyt­enda­vernd,“ segja sam­tökin í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu með öðrum neyt­enda­fé­lögum.

Evr­ópu­sam­bandið áætlar að tafir og nið­ur­fell­ing flug­ferða gætu kostað flug­fé­lög allt að 8,1 millj­arð evra á þessu ári.

Þó benda aðilar sem aðstoða far­þega við að sækja bætur gegn þóknun á það að aðeins brot af þeim millj­ónum sem eiga rétt á bótum gera yfir höfuð til­raun til að sækja þær.

„Fyrir evr­ópska við­skipta­vini væri þetta hörmu­leg breyt­ing,“ sagði Tomasz Pawliszyn, fram­kvæmda­stjóri Airhelp, í sam­tali við AFP.

Þar sem þriggja tíma við­miðið hefur einnig verið tekið upp í löndum eins og Kanada, Tyrk­landi og Bret­landi, gæti breyt­ingin skapað rugl­ing og valdið því að evr­ópsk flug­fé­lög fengi að seinka flug­ferðum sínum meira en keppi­nautar þeirra utan Evrópu - jafn­vel á sömu leiðum, bætti hann við.

„Hótanir“

Tillagan er hluti af víð­tæk­ari umbóta­pakka í ferða­manna­málum.

Í honum eru einnig hug­myndir sem þykja far­sælli fyrir far­þega, svo sem bann við því að rukka fyrir hand­far­angur sem er innan venju­legra stærðar- og þyngd­ar­tak­marka.

Þrátt fyrir það hefur til­lagan valdið reiði, ekki síst þar sem pólsk stjórn­völd - sem gegna for­mennsku í ráð­inu - í for­mennsku ráðs­ins - reyna að þrýsta þessu hratt í gegn um Evr­ópu­þingið.  

„Fyrsta orðið sem kemur upp í hug­ann yfir fram­göngu ráðs­ins er hótun,“ sagði Andrey Novakov, þing­maður í mið-hægri flokknum EPP og skýrslu­gjafi þings­ins í mál­inu, við AFP.

„Allir sem eru ekki flug­menn hér á þing­inu þurfa tíma til að melta þessa til­lögu og leggja fram hug­myndir sem gætu þjónað bæði far­þegum og flug­fé­lögum.“

„Það ger­ist ekki þegar tíma­pressan ræður för,“ bætti hann við.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Fyrirtæki eins og Airhelp græða töluvert á núverandi fyrirkomulagi því þau taka um €150 fyrir greiðann sem er að sækja bæturnar. Af €600 fær því farþeginn ekki nema €450. Farþeginn getur jú sótt bæturnar sjálfur en það hefur verið gert að skriffinnsku martröð til að tryggja að það nenni því enginn. Það mætti vel hugsa sér að lækka þessar bætur um €100 og búa til vef-viðmót á vegum EU sem straumlínulagar þetta ferli fyrir farþega og þeir fái í sínar hendur €500 fyrir óþægindin en EU fái €50 í sinn hlut til að mæta kostnaði. Það er enginn vafi að þetta er sterkur hvati fyrir flugfélögin að halda tímaáætlun. Þetta myndi vissulega kippa fótunum undan fyrirtæki eins og Airhelp en er gjaldtaka þess sanngjörn gagnvart farþegum?
    1
    • Það er mjög einfalt mál að fylla út þessi form sjálfur á netinu, hef yfirleitt gert það á flugvellinum meðan ég bíð (nægan tíma hefur maður jú). Að greiða einhverjum 20þ kall fyrir að fylla út eyðublað er algjört hámark ósjálfbjargar
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár