Sýnin aldrei skoðuð af óháðum sérfræðingum

Embætti land­læknis tókst ekki að fá óháðan erlendan aðila til að end­ur­skoða sýni í kjöl­far alvar­legra mis­taka sem voru gerð við grein­ingu sýna á Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins árið 2018. „Enginn aðili hafði bol­magn til að taka á móti svo mörgum sýnum og afgreiða með skjótum hætti,“ segir í svari land­læknis við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.

Sýnin aldrei skoðuð af óháðum sérfræðingum
Leg­háls­sýni rann­sökuð hjá Leit­ar­stöð­inni til loka árs 2020 Þá var Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins lögð niður og skimanir færðar til opin­berra stofn­ana. Mynd: Krabbameinsfélag Íslands

Um mitt ár 2020 var greint frá því í fjöl­miðlum að tveimur árum fyrr, árið 2018 hefðu verið gerð mis­tök við grein­ingu leg­háls­sýna hjá Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags Íslands. Á þessum tíma voru öll leg­háls­sýni rann­sökuð á frumu­rann­sókn­ar­stofu Leit­ar­stöðvar Krabba­meins­fé­lags­ins. Þannig var búið um hnút­ana hér á landi allt til loka árs 2020 þegar Leit­ar­stöðin var lögð niður og skimanir alfarið færðar til opin­berra stofn­ana. 

Áður­nefnd mis­tök komust í hámæli í kjöl­far fréttar Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að kona um fimm­tugt hefði fengið ranga grein­ingu á sýnum úr leg­hálsi sem tekið var árið 2018. Við end­ur­skoðun á sýn­inu sáust greini­lega miklar frumu­breyt­ingar. Þá var konan komin með ólækn­andi krabba­mein. Stöð 2 greindi nokkrum dögum síðar frá því að 35 ára tveggja barna móðir sem hefði fengið þá nið­ur­stöðu úr sýna­töku árið 2018 að allt væri með felldu, …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár