Forsætisráðherra segir fákeppni á greiðslumiðlunarmarkaði

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir fákeppni á inn­lendum greiðslu­miðl­un­ar­mark­aði. Það sé eitt af því sem nýr samn­ingur við Rapyd afhjúpaði. Hún segir vinnu í gangi við að koma á inn­lendu greiðslu­miðl­un­ar­kerfi sem gæti sparað neyt­endum millj­arða á ári hverju.

Forsætisráðherra segir fákeppni á greiðslumiðlunarmarkaði
Nýtt kerfi á leið­inni Vinna við nýtt inn­lent greiðslu­miðl­un­ar­kerfi stendur yfir, að sögn for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Golli

Þetta er verk­efni sem hefur tekið allt of langan tíma,“ segir Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­isáð­herra spurð út í hægan gang rík­is­ins um upp­bygg­ingu á inn­lendu greiðslu­miðl­un­ar­kerfi. Seðla­banki Íslands hefur kallað eftir slíku kerfi í mörg ár og á það bent að Ísland sé eina landið á Norð­ur­lönd­unum sem hefur ekki yfir að ráða slíku kerfi. Slík hand­vömm getur haft alvar­legar afleið­ingar eins og Seðla­banki Íslands hefur bent á, til að mynda ef Ísland missir sam­band við önnur ríki um ljós­leið­ara og sæstrengi. Seðla­bank­inn vill koma kerf­inu á í gegnum gervi­hnatta­sam­band til þess að tryggja öryggið. Þá hefur verið á það bent að umtals­verðir hags­munir fylgja ríkj­andi kerfi, sem kostar neyt­endur um 50 millj­arða á ári, að því er RÚV greindi frá í jan­úar. Sá kostn­aður er mun hærri hér á landi en ann­ars staðar. 

Fákeppni á markaði

Kristrún bendir á að rík­is­stjórnin hafi erft þetta mál frá fyrri rík­is­stjórn …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ekki kemur fram hve mörg fyrirtæki tóku þátt í þessu útboði, sem sennilega er grunnur að fullyrðingu um einokun. Allavega 4 önnur fyrirtæki starfa á þessum markaði og hægt að sannreyna hjá Seðlabanka hver þau eru. Ef þau kusu að taka ekki þátt, má álykta að Rapyd sé að niðurgreiða þessa þjónustu. Sem væri efni í góða grein/frétt..
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár