Erlendir fjölmiðlar fjalla um vanda Climeworks: Hópuppsagnir um miðja viku

Töluverð umræða hefur skap­ast í kringum fregnir Heim­ild­ar­innar um stöðu Climeworks, sem sér nú fram á hóp­upp­sagnir. Þeir segja upp­sagn­irnar ótengdar fréttum Heim­ild­ar­innar í yfir­lýs­ingu til The Guardian.

Erlendir fjölmiðlar fjalla um vanda Climeworks: Hópuppsagnir um miðja viku
Climeworks er með loftsugu­verk­smiðjur sínar á Hell­is­heiði. Mynd: Golli

Breska dag­blaðið The Guardian og franska frétta­veitan AFP hafa fjallað um vanda Climeworks sem Heim­ildin greindi frá sem og frétta­stofa Sviss­neska rík­is­sjón­varps­ins SRF sem greindi frá því fyrir helgi að Climeworks hafi til­kynnt um hóp­upp­sagnir í vik­unni. 

Þá hefur annar stofn­andi Climeworks og for­stjóri, Jan Wurzbacher, birt færslu á Linkedin þar sem hann upp­lýsir að loftsugu­verið ORCA hafi fangað innan við þús­und tonn af CO2 á síð­asta ári og á fyrstu fjórum mán­uðum þessa árs. Fyr­ir­tækið hefur gætt þess vand­lega að halda því til haga í öllu kynn­ing­ar­efni og fjöl­miðla­við­tölum að vélin geti fangað 4000 tonn, en frá upp­hafi hefur hún aðeins náð innan við einum fjórða af því magni. Það sama á við um loftsugu­verið Mammoth sem átti að geta fangað 36.000 tonn árlega, en fang­aði ein­ungis 105 tonn á fyrstu tíu mán­uð­unum eftir að það var opnað. Bæði ORCA og Mammoth eru í Jarð­hita­garði ON á Hell­is­heiði.

…
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár