Margeir fær milljónir í bætur – Hafði áreitt samstarfskonu hjá lögreglunni

Íslenska ríkið þarf að greiða Margeiri Sveins­syni aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóni miska­bætur fyrir að hafa færður til í starfi eftir að sam­starfs­kona hans sak­aði hann um ofbeldi og áreitni. Lög­reglu­stjóri til­kynnti hér­aðs­sak­sókn­ara um hugs­an­lega refsi­verða hátt­semi Margeirs en mál­inu var vísað frá.

Margeir fær milljónir í bætur – Hafði áreitt samstarfskonu hjá lögreglunni
Halla Bergþóra lög­reglu­stjóri færði Margeir til í starfi. Mynd: Heimildin

Íslenska ríkið þarf að greiða Margeiri Sveins­syni, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóni hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, tvær millj­ónir í miska­bætur eftir að hann var færður til í starfi fyrir hálfu öðru ári. Áður hafði hann verið sendur í leyfi eftir að lög­reglu­kona lagði fram kvörtun vegna áreitni og ofbeld­is­fullrar hegð­unar af hans hálfu í sinn garð yfir margra mán­aða tíma­bil.

Lög­reglu­stjóri til­kynnti hér­aðs­sak­sókn­ara um hugs­an­lega refsi­verða hátt­semi af hálfu Margeirs en málið var fellt niður. Auk þess þarf ríkið að greiða máls­kostnað Margeirs upp á 1,6 millj­ónir króna. Þetta er nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Margeir tók við nýrri stöðu hjá emb­ætt­inu þegar hann sneri aftur úr leyfi. Bæði hann og konan störf­uðu á starfs­stöð lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á Hverf­is­götu í Reykja­vík, þar sem Margeir starfar enn, en lög­reglu­konan óskaði eftir flutn­ingi á aðra starfs­stöð. Tiltekið er í dómi hér­aðs­dóms að þau hafi átt í „ást­ar­sam­bandi.“ Áreitnin hafi átt sér stað eftir að konan sleit sam­band­inu. 

Í dómnum segir að af gögnum máls­ins sé ljóst að ákvörðun um breyt­ingu á starfi og verk­sviði Margeirs hafi verið tekin vegna ósæmi­legrar hátt­semi hans gagn­vart kon­unni. Ekki verði hins vegar ráðið að ákvörð­unin hafi jafn­framt verið „reist á öðrum atriðum er hann varða. Má þannig telja í ljósi fram­an­greinds að lög­reglu­stjór­anum hafi verið kleift, er hún tók hina umdeildu ákvörðun 16. októ­ber 2023, að láta stefn­anda sinna sams konar störfum og hann hafði áður gert án þess að gegna áfram yfir­manns­stöðu gagn­vart“ kon­unni. 

Einnig kemur fram að Margeir hafi „fellt sig við áminn­ingu lög­reglu­stjór­ans 16. októ­ber 2023 og gerir ekki athuga­semdir við lýs­ingu atvika í áminn­inga­bréfi lög­reglu­stjór­ans“ en í áminn­ing­unni kom meðal ann­ars fram að Margeir hafi farið yfir mörk kon­unnar í tíu til­vikum. 

Margeir fór í veik­inda­leyfi síð­asta haust og sagð­ist ekki treysta sér til að mæta til vinnu vegna fram­komu æðstu stjórn­enda lög­regl­unnar sem hefðu valdið honum miklum þján­ingum. Þá til­kynnti hann dóms­mála­ráð­herra um að hann hefði höfðað mál vegna breyt­inga á starfi hans, og að hann upp­lifði ein­elti og ofbeldi í sinn garð.

Úttekt sálfræðistofu

Kastljós greindi frá því 12. des­em­ber 2023 að hátt­settur lög­reglu­maður hefði áreitt lög­reglu­konu kyn­ferð­is­lega. Hann var þá ekki nafn­greindur en áður höfðu helstu miðlar fjallað um að Margeir hefði verið settur í leyfi frá störfum sem þótti tíð­indum sæta enda hátt­settur hjá emb­ætt­inu og stýrði til að mynda rann­sókn á morð­inu í Rauða­gerði.

Lög­reglu­emb­ættið fékk sál­fræði- og ráð­gjaf­ar­stof­una Líf og sál til að fara yfir málið. Í skýrslu hennar kemur fram að bæði Margeir og lög­reglu­konan hafi fengið tæki­færi til að leggja fram gögn máli sínu til stuðn­ings. Meðal þess sem hann lagði fram var rituð útgáfa af sam­tali sem Margeir átti við kon­una, sem hann sagð­ist hafa hljóð­ritað án hennar vit­undar.

Þá hafi hann spilað hljóð­bút úr sam­tal­inu fyrir starfs­fólk sál­fræði­stof­unnar til að sýna að upp­takan væri raun­veru­leg. Margeir afhenti þeim hins vegar ekki upp­tök­una sjálfa heldur ein­ungis rit­uðu útgáf­una. Við vinnslu máls­ins ákvað starfs­fólk stof­unnar að nota hana ekki því hún væri mögu­lega á gráu svæði varð­andi per­sónu­vernd. Í fram­haldi af því tók Margeir skjalið til baka. 

Olli henni ótta og vanlíðan

Kastljós greindi frá því að í tíu af tólf atvikum sem sál­fræði­stofan tók til skoð­unar eftir kvörtun lög­reglu­kon­unnar þóttu tíu þess eðlis að þau félli undir skil­grein­ingu á ofbeldi. Margeir hafi valdið kon­unni van­líðan og ótta, auk þess sem valda­ó­jafn­vægi hafi verið mikið á milli þeirra. Hann var ekki aðeins í valda­stöðu innan emb­ætt­is­ins heldur er hann tæp­lega þrjá­tíu árum eldri en lög­reglu­konan. 

Meðal þess sem hann hafi gerst sekur um var að þvinga hana til að taka á móti sér á heim­ili hennar seint að kvöldi, senda henni stöðug skila­boð í gegnum sam­fé­lags­miðla og sitja fyrir henni í vinn­unni. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Haraldsson skrifaði
    Þeir rannskaka sig sjáflir og fá æðri stöður auk umbunar sem dæmi þessi þrjótur og sá sem níddist á börnunum í bústaðnum.

    https://heimildin.is/grein/7095/
    1
  • AÓ
    Anna Ólafsdóttir skrifaði
    Skil ekki. Af hverjufær hann bætur
    1
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Það er um að gera að umbuna ,,ofbeldismönnum" innan Lögregglunar, það eykur traustið!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár