SFS gagnrýna hækkun veiðigjalda á TikTok

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi halda úti TikTok-reikn­ingnum Ekkert slor þar sem ungur hag­fræð­ingur segir mál­flutn­ing atvinnu­vega­ráð­herra um veiði­gjöld rangan. Fyrr­ver­andi vara­þing­maður Pírata hefur gagn­rýnt hag­fræð­ing­inn fyrir að gera ekki nógu skýrt grein fyrir tengslum sínum við hags­muna­sam­tökin í mynd­bönd­unum.

SFS gagnrýna hækkun veiðigjalda á TikTok

Síðustu vikur hafa mynd­bönd birst á reikn­ingnum „Ekkert slor“ á sam­fé­lags­miðl­inum TikTok. Þar er fjallað um mál­efni sjáv­ar­út­vegs­ins og ber þar meðal ann­ars á gagn­rýni í garð fyr­ir­hug­aðrar hækk­unar veiði­gjalda. Atvinnu­vega­ráð­herra mælti fyrir frum­varpi þess efnis á Alþingi í vik­unni.

Sé smellt á síðu Einskis slors má sjá að það eru Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sem halda reikn­ingnum úti. Þó er vert að taka fram að alla jafna fær fólk á TikTok mynd­bönd upp á svo­kall­aðri „Fyrir þig síðu“ (For You Page), en ekki á síðum ein­stakra reikn­inga. Því blasir ekki við að mynd­böndin séu fram­leidd af SFS, nema fólk smelli á reikn­ing­inn sjálfan.

TikTokÁ prófíl Einskis slors er skýrt tekið fram að reikn­ing­ur­inn sé á vegum SFS.

Leiðréttir málflutning ráðherra

Í nokkrum mynd­böndum, sem hafa náð tals­verðri dreif­ingu á síð­ustu vikum, má sjá unga konu, …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Í ljósi þess hve kvótahafar hafa auðgast mikið er ljóst að mun stærri hluti hagnaðar hefði átt að koma í hlut ríkisins fyrir löngu.
    Nú veit ég ekki nákvæmlega hvernig lagafrumvarpið gerir ráð fyrir að hlutur ríkisins sé reiknaður. En með því að skipta arðinum í ákveðnum hlutföllum milli ríkis og kvótahafa hefði það engin áhrif á afkomu fyrirtækjanna eða á þau sveitarfélög þar sem þau eru staðsett.
    Gífurlegur arður til kvótahafa myndi minnka jafnmikið og hlutur ríkisins myndi aukast. Staða fyrirtækjanna væri óbreytt.
    Í áróðursherferð SFS er í blekkingarskyni gefið í skyn að það sé verið að fara norska leið. Norðmenn hafa haft vit á því að láta almenning njóta hagnaðrins af auðlindum sínum og er nærtækt að nefna olíusjóðinn í því sambandi.
    Með Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórnum undanfarinna áratuga hafa fáir útvaldir, innlendir sem erlendir, hagnast gífurlega á þessum auðlindum en almenningur fengið lítið fyrir sinn snúð. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði fengið að ráða hefði Landsvirkjun verið seld fyrir slikk.
    3
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Einu sinni fengum við fermingadrengi til þess að mæla með hlutabréfakaupum og dot.net fyrirtækjum. Þá varð hrun. Svo fengum við bankstera og „fagfjáfesta“ til þess að mæla með hlutabréfakaupum. Þá var hrun, landið hrundi allt. Núna erum við að fá nýútskrifaða, blauta á bak við eyrun, til þess að segja okkur hvernig kerfið er! Eina sem er með víðtæka vanþekkingu.
    3
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Hver svo sem skoðun manna er á hækkun veíðgjalds, þá er áróðursherferð SFS illa heppnuð og höfðar lítt til almennings.
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Þessi útgerðarelíta er þjóðinni til skammar !
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár