Ekki viðkvæmir einkahagsmunir að óska eftir fundi

Mál sem opinn fundur stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun sner­ist um heitir í mála­skrá for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins „Við­tals­beiðni við ráð­herra.“ Fyrr­ver­andi tengda­móðir barns­föður Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur sakar ráðu­neytið um að hafa brotið trúnað en því neitar for­sæt­is­ráð­herra.

Ekki viðkvæmir einkahagsmunir að óska eftir fundi
Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sat fyrir svörun í morgun á opnum fundi hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis. Mynd: Golli

„Það eru ekki metnir sem við­kvæmir einka­hags­munir að óska eftir fundi,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morgun. Tilefni fund­ar­ins var með­ferð for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á erindi um per­sónu­legt mál­efni þáver­andi mennta- og barna­mála­ráð­herra, Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur. Formaður nefnd­ar­innar, Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, boð­aði til fund­ar­ins. 

Fram hefur komið í fjöl­miðlum að það var fyrr­ver­andi tengda­móðir barns­föður Ást­hildar Lóu hafði haft sam­band við for­sæt­is­ráðu­neytið og óskaði eftir fundi með for­sæt­is­ráð­herra. Konan hafi í erindi sínu sagt að málið sner­ist um mennta- og barna­mála­ráð­herra og tekið fram að hún mætti einnig sitja fund­inn. Aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra hafði í fram­hald­inu sam­band við aðstoð­ar­mann barna- og mennta­mála­ráð­herra og miðl­aði þar upp­lýs­ingum um nafn, síma­númer og heim­il­is­fang kon­unnar. Hún hefur síðan sakað for­sæt­is­ráðu­neytið um trún­að­ar­brest vegna þessa. 

Vildi afsögn Ásthildar Lóu

Síðar kom í ljós að það sem konan hugð­ist ræða á fundi með Kristrúnu, og eftir atvikum Ásthildi Lóu, var að sú síð­ar­nefnda hafi eign­ast barn með 16 ára dreng þegar hún var 23 ára, en þau hafi starfað saman í ung­linga­starfi trú­fé­lags­ins Trú og líf. Vegna þessa mis­bauð kon­unni að Ást­hildur Lóa væri orð­inn barna­mála­ráð­herra og vildi krefj­ast afsagnar hennar. 

Þessi fundur hafði ekki verið hald­inn þegar RÚV greindi frá því þann 20. mars að Ást­hildur Lóa hafi „fyrir þremur ára­tugum, átt í ást­ar­sam­bandi við 15 ára pilt og eign­ast með honum son. Piltinum kynnt­ist hún þegar hún leiddi kristi­legt ung­linga­starf. Barns­faðir hennar sakar hana um tálmun en Ást­hildur Lóa hafnar þeim ásök­unum,“ og síðar sama dag að hún ætl­aði að segja af sér ráð­herra­emb­ætti. 

Í fram­hald­inu sagði konan frá því að Ást­hildur Lóa hafi mætt heim til kon­unnar og reynt að hringja í hana, eftir að konan hafði sent erindið til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Þannig hafði Ást­hildur Lóa nýtt sér þær upp­lýs­ingar sem aðstoð­ar­maður hennar fékk frá aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra; nafn og heim­il­is­fang konu sem óskaði eftir fundi með ráð­herr­unum. 

Konan hefur sagt að sér hafi verið brugðið að Ást­hildur Lóa hafi komið heim til sín og hefur kvartað til Per­sónu­verndar vegna með­ferðar for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á með­ferð þeirra upp­lýs­inga sem hún lét því í té. 

Skráð í málaskrá sem viðtalsbeiðni

Á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í  morgun neit­aði Kristrún því að ráðu­neytið hafi brotið trúnað, en það hefur hún áður sagt opin­ber­lega. Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurði á fund­inum hvað málið heiti í mála­skrá for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og fékk þau svör frá Kristrúnu að málið héti „Við­tals­beiðni við ráð­herra.“

Þá sagði Kristrún að það teld­ust ekki við­kæmar per­sónu­upp­lýs­ingar að óska eftir fundi með ráð­herra, en konan hafi gefið upp nafn sitt og tengiliða­upp­lýs­ingar þegar hún hafði sam­band við ráðu­neytið til að auð­kenna sig og í því skyni að hægt væri að hafa sam­band við hana vegna erind­is­ins. Ekkert hafi komið fram upp­haf­lega að málið varð­aði við­kvæma per­sónu­lega hagi mennta- og barna­mála­ráð­herra. Kristrún sagð­ist einnig hafa fengið það stað­fest að eng­inn starfs­maður for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins hafi heitið kon­unni trún­aði sím­leiðis, eins og konan hefur haldið fram. 

Kristrún sagði enn­fremur á fund­inum að per­sónu­vernd­ar­full­trúi ráðu­neyt­is­ins hafi verið búinn að ákveða að taka málið upp sér­stak­lega eftir að konan sak­aði ráðu­neytið um að brjóta trúnað en hún hafi síðan sjálf vísað því til Per­sónu­verndar, þar sem það er núna til umfjöll­unar.

Leitaði að konunni á Facebook

Eftir að Ást­hildur Lóa sagði af sér ráð­herra­emb­ætti sendi hún frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún sagð­ist ekki hafa áttað sig á því hvaða kona þetta, þegar henni hafi verið greint frá nafni kon­unnar sem óskaði eftir fund­inum. Ást­hildur Lóa hafi hins vegar síðan leitað hana uppi á Facebook, og sagð­ist vona að eng­inn lasti sig fyrir að vera for­vitin um hver konan væri og um hvað málið sner­ist. Þá sagði í yfir­lýs­ing­unni:  „Eftir að hafa leitað fyrir mér sé ég að hún og barns­faðir eldra sonar míns voru vinir á Facebook. Mig fór því að renna í grun um hvaða mál hún vildi tala án þess að ég vissi nokkuð um hver tengsl þess­arar konu og barns­föð­ur­ins væru.“ Það var síðan í fram­haldi af því sem Ást­hildur fór heim til kon­unnar og hringdi í hana, en það fram­ferði hefur Kristrún for­dæmt og gerði aftur á fund­inum í morgun. 

Þann 24. mars var greint frá því að Ást­hildur Lóa væri komin í leyfi frá þing­störfum og var vara­maður hennar kall­aður inn.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    "Yfirheyrsla" Vilhjálms Árnasonar var vandræðaleg fyrir hann. Hann hjakkaði í sama farinu, reyndi að koma höggi á forsætisráðherra án árangurs, og ekkert kom út úr þessu annað en að Kristrún svaraði öllu skýrt og skilmerkilega-vandræðalaust.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár