„Ég hef trú á súrefni til heilans“

Þegar Gunnar J. Geirsson fagn­aði afmæl­is­deg­inum við átt­rætt hélt hann ekki köku­boð. Hann hljóp hálf­mara­þon í skosku hálönd­unum. Hér lýsir hann áhrifum hlaupa á lífið eftir starfs­lok.

„Ég hef trú á súrefni til heilans“
Hokinn af reynslu Gunnar hefur hlaupið um 18 mara­þon, mörg hálf­mara­þon og hann hefur hlaupið Lauga­veg­inn átta sinnum.

Gunnar J. Geirsson, sem er rúm­lega átt­ræður, byrj­aði að hlaupa fyrir alvöru í kringum 1987. Hann hefur tekið þátt í um átján mara­þonum, farið Lauga­veg­inn átta sinnum og auk þess tekið þátt í fjölda götu­hlaupa hér­lendis og erlendis.

Í dag fer hann þrisvar í viku á æfingu með hlaupa­hópnum sínum, Laugaskokki, auk almennra göngut­úra að heiman.

Á átta­tíu ára afmæl­is­dag­inn sinn í fyrra fór Gunnar hálft mara­þon, svo­kallað Loch Rannoch Half Marathon, í skosku hálönd­unum.

Var of þungur

Gunnar hafði eitt­hvað skokkað í gegnum árin en í kringum 1987, kom­inn á fimm­tugs­aldur, ákvað hann að byrja að hlaupa fyrir alvöru. Honum fannst hann vera orð­inn of þungur.

„Það var eig­in­lega aðal­á­stæðan fyrir því að ég fór að hreyfa mig meira. Svo hef ég verið að hlaupa og hreyfa mig nokkuð reglu­lega síðan.
Ég byrj­aði að hlaupa einn en var oft að leita í blöð­unum að ein­hverjum skokk­hópum sem tækju við byrj­endum. Þannig hópar voru ekki eins algengir þá eins og núna. Svo var mynd­aður hópur hjá Mætti og hann var fyrsti skokk­hóp­ur­inn sem ég fór í. Hann var í þrjá mán­uði frá því á vorin og fram að Reykja­vík­ur­mara­þoni og var meðal ann­ars mið­aður við skemmtiskokkið þar. Svo breytt­ist það og tveimur til þremur árum síðar var farið að bjóða upp á hlaupa­æf­ingar allt árið. Þannig byrj­aði þetta hjá mér.“ 

Gunnar hljóp síðan lengi með hlaupa­hópi á vegum Náms­flokka Reykja­víkur. „Ég lærði heil­mikið þar en þar var góður þjálf­ari og góð aðstaða. Félags­lega hliðin var líka til fyr­ir­myndar. Það var hlaupið þrisvar í viku: Á mánu­dögum sprettir, á mið­viku­dögum milli­vega­lengdir og svo á laug­ar­dögum voru löngu hlaupin; eða eins og hefð­bundið er í dag hjá flestum skokk­hópum. Náms­flokka­hóp­ur­inn varð síðan að Laugaskokki sem er minn núver­andi hlaupa­hópur. Sammerkt með öllum þessum hópum eru frá­bæri þjálf­arar og hlaupa­fé­lagar.“

Félagsskapurinn mikilvægur

Gunnar segir að í Laugaskokki sé fólk á öllum aldri og öllum getu­stigum.

„Við erum tveir félagar þar sem komnir erum yfir átt­rætt, Ingólfur Sveins­son og ég, og við göngum og skokkum saman. Við reynum að mæta sem oft­ast og hitta félag­ana og taka þátt í æfing­unum eins og við getum. Félags­skap­ur­inn skiptir ekki minna máli en hrað­inn hjá okkur núorðið. Það er mjög gott að hafa æfing­arnar sem einn af föstu punkt­unum þegar maður er hættur að vinna,“ segir hann.

Hlaupum fylgir um leið ákveðin sjálfs­þekk­ing.

„Maður lærir heil­mikið á sjálfan sig þegar maður fer með að hlaupa
Gunnar J. Geirsson
hlaup­ari

„Maður lærir heil­mikið á sjálfan sig þegar maður fer með að hlaupa. Það kemur svo margt í ljós sem maður þarf að spek­úlera í, finnst mér. Maður fer til dæmis að hugsa meira út í til dæmis stoð­kerfið, hjarta og lungu og þetta hefur mér fund­ist áhuga­vert. Ég held að það hafi mjög góð áhrif á bæði lík­am­lega og and­lega heilsu fólks að hreyfa sig svona og and­legi hlut­inn teng­ist kannski ekki síður félags­skapnum. Ég hef líka trú á súr­efni til heil­ans. Það er nú ein­falda skýr­ingin sem ég finn á þessu. Svo hef ég bara séð í gegnum tíð­ina hvað þetta hefur góð áhrif á marga hlaupara sem hafa átt í ein­hverjum and­legum erf­ið­leikum. Það er í seinni tíð farið að tala svo mikið um „heila­heilsu“ og þegar maður kynnir sé það þá reyn­ist hreyf­ing vera mjög góð fyrir það líka sem við­bót við annað.“

Félag­arnir skokkaÍ Laugaskokki er fólk á öllum aldri og öllum getu­stigum. Hér eru Gunnar og Ingólfur Sveins­son, ríf­lega átt­ræðir hlaupa­fé­lagar.

Um átján maraþon

Gunnar segir að fyrstu árin hafi ekk­ert verið talað um heilt mara­þon.

„Þegar getan og reynslan batn­aði vorum við byrjuð að tala um mara­þon og heill­aði það marga að hlaupa þessar lengri vega­lengdir.“

Síðan þá hefur Gunnar hlaupið um 18 mara­þon, mörg hálf­mara­þon og hann hefur hlaupið Lauga­veg­inn átta sinnum, um 55 kíló­metra leið.

„Mér fannst þetta mjög gaman og ekki síst æfinga­ferlið á undan hlaup­unum sem gat varað í nokkra mán­uði auk þess sem við fórum í margar skemmti­legar ferðir í tengslum við þessi hlaup bæði inn­an­lands og utan.“

Æfingar, gangur og hlaup

Nú orðið eru æfingar Gunnars orðnar blanda af göngu og skokki til skiptis.

„Maður hleypur kannski 200 metra og gengur 200 metra. Tíminn og hrað­inn skipta minna máli. Það er jafn­vel betra að fara hægar heldur en hraðar. Fólk er oft að hugsa um hrað­ann en það á ekki að hugsa of mikið um hann, sér­stak­lega ekki á þessum aldri.“

„Tíminn og hrað­inn skipta minna máli
Gunnar J. Geirsson
hlaup­ari á níræð­is­aldri

Síð­ast­liðna vetur hefur Gunnar stundað leik­fimi tvisvar í viku hjá Félagi eldri borg­ara í Garðabæ. „Það er líka mjög gott. Það þarf að halda vöðvamass­anum, lið­leik­anum, úthald­inu og snerp­unni við.“ 

Þakkar hreyfingunni lífsgæðin

Gunnar segir að það hafi góð áhrif á flesta að hreyfa sig reglu­lega og ekki síst eldra fólk. Oft er þörf en þá er nauð­syn, segir hann.

„Það hægir á manni eftir því sem maður eld­ist og þá eru hlaup, ganga eða önnur lík­ams­rækt sem við­heldur styrk, úthaldi og jafn­vægi mjög mik­il­væg. Það þarf að miða áreynslu við getu. Sumir geta hlaupið fram eftir öllum aldri en öðrum hentar gangan betur. Fólk þarf að finna áreynslu við sitt hæfi og ekki síður það sem því finnst gaman af. Ég þakka hlaup­unum og annarri lík­ams­rækt að mér finnst ég í all­góðu formi miðað við aldur og sætti mig við það að það hefur hægt á mér. Ég hef góðan styrk í fótum og get farið í góða göngut­úra og léttar fjall­göngur.“

Eftir því sem skref­unum og árunum fjölgar hefur Gunnar skipt út hlaupa­ferðum fyrir göngu­ferðir erlendis.

„Í stað­inn fyrir hlaupa­ferðir höfum við hjónin und­an­farið farið í nokkrar viku­langar göngu­ferðir með Bænda­ferðum til dæmis til Ítalíu, Spánar og Þýska­lands. Þegar maður er að fara í þessar ferðir eða ákveðið hlaup þá er maður að und­ir­búa sig fyrir það í nokkra mán­uði og þá er sjálft hlaupið eða göngu­ferðin gul­rótin til að hreyfa sig.
Það að ég byrj­aði að hlaupa hefur gefið mér mjög mikið í líf­inu. Það er mik­il­vægt að halda áfram að hreyfa sig þegar maður eld­ist þó það hægi á manni. Maður lengir kannski ekki lífið, en bætir lífs­gæðin, held ég.
Og það er aldrei of seint að byrja.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2025

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár